Góða kvöldið, flottar breytingar Ella... líst vel á :)
Já lítið verið bloggað að undanförnu, allir að taka sig á... börnin stækka og sum eru ekkert að flýta sér í heiminn, já Hildur mín er komin fram yfir - áttum að eiga í gær 18. mars, skv. upphaflega planinu en það er allt bara rólegt þannig að þá er bara að bíða, og taka einn dag í einu, allavega í síðasta lagi 2. apríl !
Lét hlekk á síðuna (hér til hægri) inn á síðuna okkar sem við uppfærum vonandi fljótlega :)
mánudagur, mars 19, 2007
hæ gæs...
Mér leiddist (lesist: nenni ekkert að gera af öllu hinu sem ég á að vera að gera) svo ég uppfærði bloggið okkar, breytti um útlit og lagaði linkana. Rosa flott!!! Ef þið eigið fleiri heimasíður endilega henda þeim inn (eða sendið linkana og ég bæti þeim við)!!!
Hvað er að frétta annars? Allir dauðir???

fimmtudagur, mars 15, 2007
Halló
Rosalega erum við öll orðin löt að blogga hér. Af mér er allt fínt að frétta, nóg að gera í vinnu, skóla og ala upp krakkana. Mér finnst ekkert smá gaman að vera byrjuð í skóla aftur en næ samt ekki að sinna náminu alveg nógu vel en vonandi fer ég að vera duglegri. Vinnan gengur fínt, var með 2 verðlaunahafa á Stóru upplestrarkeppninni um daginn svo eitthvað er ég að gera rétt þar.
Læt fylgja með myndir af krökkunum mínum, fyrir áhugasama þá var ég loksins að setja inn myndir á barnaland aftur.
föstudagur, mars 09, 2007
Hei og hó ólympíukandídatar og aðrir eitthvað-datar!! Hvað er að frétta af vesturvígstöðvunum???
Hvernig væri að taka smá föstudagsdroll fyrir framan tölvuna og láta heyra í sér!!
Héðan af meginlandinu er allt gott að frétta, vor í lofti og almenn skemmtilegheit eftir langa og stranga veikindatörn. Er hvorki byrjuð í íþróttum né námi og prísa mig sæla! Ætla bara að njóta veðurblíðunnar í sumar og leggjast í ferðalög, svona til að byggja sig upp og undirbúa sig andlega undir flutninga á Klakann næsta vetur....
Ciao í bili... og koma svo, láta heyra í sér!!!
Það má líka setja inn myndir... Eins og þessa, tekna af mér og litla krílinu í stuttu fríi í Ardenna "fjöllunum", vorum þarna að koma úr "svaka" hellaferð, allt upplýst, steinsteyptir stígar og stigar, og svo endað með smá bátsferð og fallbyssuskoti! Eitthvað annað en hellaferðin góða með augnlækninum um árið þegar við þurftum að skríða á maganum til að komast út!!!

sunnudagur, febrúar 11, 2007
Já gaman að heyra frá fyrstu Ólympíukandidötunum fyrir Pekingleikana. Annars er ég að skipta um vinnu, er að fara til Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins að Mógilsá. Verð engu að síður með starfsaðstöðu á Keldnaholti. Er semsagt sérfræðingur í landupplýsingakerfum við þessa ágætu stofnun. Mikið felt og mikið gaman í sumar.
föstudagur, febrúar 09, 2007
mánudagur, febrúar 05, 2007
sælt veri fólkið, samkvæmt óstaðfestum orðrómi frá mjög óáreiðanlegum aðila þá eru stebba og marta að meika það "feitt" í skvassinu þessa dagana og stefna ótrauðar á kvennalandsliðið og sæti í skvasslandsliði íslands á ólympíuleikunum í Peking 2008 !
annars, hvað segist... nú bíður minn bara spenntur eftir 18. mars, tæpar 6 vikur í væntanlegan erfingja :)
já hótelið í Brussel kemur sterkt inn ef maður leggur leið sína þangað e-h tímann.... 5 stjörnur og "all-inclusive", getur ekki klikkað ! Púrtvín á ég eftir að smakka, hef alltaf fundist það frekar kellingalegur drykkur, en sama er sagt um Bailey's sem ég fíla alveg ágætlega... go stebba go marta, kína kallar 2008 peking - no pain no gain, you can do it - adriaannnn (rocky balboa).

sunnudagur, janúar 21, 2007
Ég mæli sko með lúxuxhótelinu á Rue Kelle í Brussel, mjög gaman að vera þar. Mæli með öllum vínunum og matnum, alveg hreint ljómandi. Þetta var nokkurskonar húsmæðraorlof nema að fundurinn var ansi strembinn. Ég er að reyna að skilja Vatnatilskipun Evrópusambandsins og hvernig við getum framkvæmt hana á Íslandi. Ég geri ekki ráð fyrir að skilja nokkurntíman hvers vegna íslensk stjórnvöld reyna endalaust að telja okkur trú um að hér sé allt í lagi og við þurfum ekki tilskipanir um umhverfisvernd, en það er annað mál og sem betur fer ekki mitt djobb.
Mér líst mjög vel á að við setjum hér inn allt um mat og vín.
Ég get sagt frá því að ég keypti mína fyrstu púrtvínsflösku í fríhöfninni. Ég hef alltaf keypt Baccardi þegar ég fer í gegn, en gleymi því að mér er svo sjaldan boðið í partý og ef ég mæti með flösku í partý, þá klárast hún aldrei. Sökum aldurs ákvað ég því að kaupa eitthvað annað, og lét vaða á púrtvínið. Ég fékk svo góða púrtvínssósu um jólin. Ég bjó til púrtvínssósu með lambakjöti á föstudaginn, það virkar mjög vel. Svo hafði ég heyrt að það væri voða gott að sjússa sig á púrtvíni eftir matinn, en sem betur fer fannst mér það vont, þannig að ég held að ég sé bara ekki orðin svo gömul. Mig langaði samt ekki í Cuba Libre, þannig að kannski er ég heldur ekki ung lengur.

fimmtudagur, janúar 18, 2007
Líst vel á þessa hugmynd Böddi... við endum á því að gera bloggið að matar og vínbloggi!!!
Maður ætti nú alveg að geta sett inn punkta um vín og mat reglulega... við Brusselhjónin höfum þvílíkt gaman að því að kokka og sötra vín með... að vísu er 95% af öllu víni sem fæst hér franskt, sem er ekki reyndin heima, þannig að ég veit ekki hvernig ykkur gengur að finna það en það má alveg láta vaða.
Annars skilaði ég Stebbu frænku í lest í morgun, hún er búin að vera hér í Brusslu í 2 daga. Kom sér í vinnuhóp á vegum Evrópuráðsins og verður því reglulegur gestur hér í Brusslu. Við að sjálfsögðu notuðum tækifærið og heltum í hana voða góðu víni (Vosne-Romanée 2003 frá Gros Frère et Soeur fyrir ykkur vínspekúlantana) og gáfum henni steik! Yfir steikinni kom það svo í ljós að við erum giftar inn í sömu ættina, Snorri og Hrafnkell eru náskyldir, og synir okkar því frændur!!! Við munum því ekki aðeins hittast í Kúbudjammi næstu áratugina heldur líka í jólaboðum!!!!

miðvikudagur, janúar 17, 2007
Þar sem þetta er nú blogg um allt... þá finnst mér hafa vantað smá tillögur frá okkur um mat og vín :) eitthvað vorum að ræða þetta í sumarbústaðnum sl. haust að benda hvort á öðru á eitthvað sem við höfum prófað og fílum.Í dag bendi ég á gott vín frá Ástralíu sem ég prófaði með jólasteiknni, sem var rjúpa að þessu sinni. Lýsing frá www.vinbud.is: Tempus Two Vine Vale Shiraz. Dökkrúbínrautt. Mjúk meðalfylling, þurrt, ferskt, þroskuð tannín með þéttum hindberja og skógarberjakeim.
Það kostar reyndar slatta í ríkinu, 1.800 kr en það er alveg þess virði með góðum mat, gef þessu 86 af 100.
þriðjudagur, janúar 16, 2007
Það verður áhugavert að fylgjast með þróun mála á Kúbu á næstunni. Var að lesa þetta um grey kallinn hann Castro á BBC vefnum.
mánudagur, janúar 15, 2007
þriðjudagur, janúar 09, 2007
Gleðilegt árið elskurnar og takk fyrir þau gömlu!!!!
Vonandi gerði ég ykkur engan óleik með þessari uppfærslu á Bloggernum. Ég er hins vegar búin að lenda í þvílíkri vitleysu með Brusselbloggið mitt og hef ekkert getað póstað!
Vonandi höfðuð þið það sem best yfir hátíðarnar. Við nutum þess í botn að vera á Klakanum en maður var orðinn heldur þreyttur undir það síðasta, stöðugar heimsóknir og boð. Maður mátti ekkert vera að því að slappa af!!! En nú erum við komin aftur "heim" til Belgíu, í hversdaginn og smá afslöppun, amk til að byrja með.
10 ár frá byrjun landafræðináms... svalt! Ég er reyndar búin með Ó mæ god, ég er að verða gömul pakkann í bili. Árið áður en ég fór í landafræðina var ég úti í Montpellier og hópurinn sem var með mér þar og hefur hisst síðan hélt einmitt upp á 10 ára afmælið nú um jólin! Allir komu með myndir svo það var nóg af ó mæ god mómentum þar!!!
En ég legg til að við hóum öllum gömlu landfræðinemunum saman í brjálað partý þegar kemur að 10 ára útskriftarafmæli!!!!

miðvikudagur, janúar 03, 2007
mánudagur, desember 25, 2006
miðvikudagur, desember 20, 2006
Takk Lilli bró fyrir fiskisúpuna, hún var ekkert smá góð. Gott að fá uppskriftina líka ;-) Við verðum bara í bandi eftir að þú kemur aftur að vestan og sækjum dótið hans Þorbjarnar.
Takk fyrir hittingin þið sem komuð, alltaf gaman að hitta familíuna!
Til hamingju með Hermann Eddie! Hlakka til að sjá myndir.

þriðjudagur, desember 19, 2006
Takk fyrir í gær - ljómandi fínt að hitta ykkur sem komust !
Eddi og fjölskylda til hamingju, svona hljómaði sms-ið frá ed í gær: 14 merkur, 53 cm strákur! Fæddur 18.49, allt í góðu.
Hérna er uppskiftin frá í gær af fiskisúpunni, hún er ekki síðri daginn eftir upphituð :) http://www.eldhus.is/eldhus.php?func=birtauppskrift&id=857
Ella, þið gleymduð hérna einhverju dóti sem Þorbjörn litli á !
Gleðileg jól.

mánudagur, desember 18, 2006
Inga austur-suður, út um puður!! Get it straight, maður veit ekkert hvar þú ert hvenær og hvernig (veist þú það??) ... var með startkapplana á kellu í morgun og sýnist eitthvað ætla að fara að gerast. Nenni sko engu jóla barni. Er bara fyrir norðan og bíð spenntur en missi af ís og appelsín hjá Lilla í kveld!! sláið á þráðinn...kannski sit ég þá á biðstofu...
laugardagur, desember 16, 2006
föstudagur, desember 15, 2006
Hei þið sem eruð að fara að þvælast út á land um jólin!!! Er betra fyrir ykkur að við hittumst 18. ?? Ég get alveg snúið upp á handleggina á fólki og frestað hinu dæminu!!! Endilega látið vita!!!
Og hvar viljum við hittast.... hver þorir???
Stebba, ekki geturðu sent mér myndina af borg óttans á email. Algjör snilld og langar að skoða hana betur. Upplausnin er ekki nógu góð hér á blogginu!!!

fimmtudagur, desember 14, 2006
Já, þetta er nýja heildarskipulagið af Reykjavík -:) mikil ánægja með þetta hér, lýsir þessu nokkuð vel... eða þannig og þó ekki alslæmt, góð byrjun - hehe.
20.des lítur vel út, Inga það verður ekkert flogið 19.des ;) eddi í þetta sinn ertu nokkuð örugglega afsakður... Daddy-o mætir með jólaseríur og kannski Roy fái að fljóta með.
Svo er bara spurning hvar við verðum, hjá mér, hjá þér, hjá hinum og þessum eða kannski einhvers staðar annars staðar ?!?!?

miðvikudagur, desember 13, 2006
ok, allt að komast á hreint, mér er alveg sama 18-20, jafnvel gæti 21. des sloppið, ekki alveg komið á hreint hvenær maður leggur í hann vestur á Ísafjörð - eða norður eins og marta myndi segja ;)
eigum við að baka "smákökur" eins og um árið (2000 eða 2001 man ekki alveg) nema að við bökuðum engar smákökur, meira drukkið, ég mætti þá með svuntuna góðu sem skilaði sér loks til mín núna í haust !!

þriðjudagur, desember 12, 2006
mánudagur, desember 11, 2006
föstudagur, desember 08, 2006
Gleðileg jól Eddi minn :) hlýtur að líða að því að litli drengurinn fari að kíkja í heiminn til foreldra sinna, endilega eins og Ella segir - sýndu okkur myndir sem fyrst !
Líst vel á innflutningspartý BT, bara þegar þér hentar, kannski bara fljótlega eftir áramót í janúar..... innflutningspartý eru fyrir húsráðendur ekki gesti, til að fagna því að vera flutt inn ;)
Sting upp á þriðjudeginum (!!) 19. des fyrir hitting, hvort það gengur er önnur saga.... aldrei að vita, eru ekki allir komnir í jólaskap þá !!!!

fimmtudagur, desember 07, 2006
Það eru karlmennirnir í familíunni sem eru duglegastir á blogginu þessa dagana!
Mútter, við bíðum spennt eftir fréttum af nýjasta erfingjanum! Pósta inn mynd við fyrsta tækifæri þegar hann kemur í heiminn!
Dad, passaðu þig á jólaljósashowinu! Segi eins og Mútter, ekki detta! Það er bannað að detta!
Ég hef ákveðið að láta inniljós og kertaljós duga... læt foreldrum mínum eftir aðrar skreytingar enda ætlum við að vera þar í góðu yfirlæti í heilar 3 vikur yfir jólin.
Lilli, velkominn aftur á Klakann, greinilega kaldara í Berlín en hér. Hér er bara haustveður og 15 stiga hiti. Ekkert sérlega jólalegt.
Ég væri alveg til í smá hitting yfir jólin. Er á Klakanum frá 16. des til 6. jan. Einhverjir dagar þegar bókaðir en endilega stinga upp á dagssetningum ef áhugi er á slíku!

Jæja þá er konan komin dag fram yfir og allir að bíða spenntir! Það varð ekki mikið úr einhverskonar innflutningspartý og helgin fór bara í að fúa flísar á vegg....mosaic drasl sem við héldum en þurfti að endurraða vegna breytinga. Þeim var endurraðað stykki fyrir stykki. Þetta helv. er búið að taka mih mánuð og svo koma jólin!! Arrgh, maður er rétt búin að lappa uppá kofann og þá þarf að fara að skreyta allt draslið! Þá koma í ljós ómögulegar innstungur og fleira og fleira. Ég set nú samt bara ljós á svalirnar svo ég fer ekki að fórna mér fyrir jólin eins og Dad....hmmm hafið þið pælt í því annars við Dad erum skilin....Dad mundu að fólk sem dettur niður af húsþökum er oft marga mánuði að jafna sig!! Enginn hreyfing = BT hleypur í spik! Lilli berlínarfari! Svo Berlín var betra en Ak síðustu helgi .. bíddu þar til ég bíð þér næst :)
miðvikudagur, desember 06, 2006
Jæja er ekkert að frétta í jólamánuðinum, allir uppteknir í jólagjafainnkaupum... Jæja nú er ég búinn að vera í útiseríuskreytingum, hef greinilega flutt í götu þar sem jólaskreytingar eru íþrótt og ég hef ákveðið að taka þátt í kapphlaupinu. Það eru sennilega 7-8 metrar upp í hæsta punkt á þakinu þannig að þetta þýðir talsverða lífshættu meðan þessu er komið fyrir.
Ég þarf endilega að fara að halda innflutningspartí fyrir ykkur. Einhver óskadagsetning??

mánudagur, desember 04, 2006
rólegt um að vera á síðunni, megum ekki láta hana deyja út vinir....... hvar er Roy ?
minn var í Berlín alla síðustu viku, helv. fínt og notalegt að komast aðeins af landi brott, þó svo veðrið í Berlín hafi ekki verið neitt hlýtt, kringum 5-8°C.
hvernig var um helgina Ed ? eigum við að stefna á eitthvað jóladæmi, ef svo er þá fer minn vestur á Ísafjörð um jólin sennilega í kringum 20-21. des.
hvað segið þið ?

miðvikudagur, nóvember 08, 2006
Hurðu Inga Congrats!! Ég verð þá örugglega í bandi allar þekkingastöðvar, háskólasetur og nefndu það um allt land eru á okkar radar með samstarf og samvinnu.
Enn er stefnt að innflutningsboði 1. - 2. des. þar sem 6. des á Hermann Þór að fæðast og betra að vera ekki í partýi þá. Ég fer svo í langt jólafrí (fæðingarorlof)
Annars er það títt að ég er öll kvöld og allar helgar að böggla saman íbúðinni, eldhúsið er klárt utan gólfið og nú er IKEA varningur uppá um 100.000 komin í hús og verkfræðingar Legolands mega bara vara sig þegar ég verð búin með það!! Næst er svo baðið ....nóg að gera en þetta er allt að koma. Svo er maður utan þess allavega 2 daga í viku einhverstaðar úti á landi en mest þó í borg dauðans. Nóg að gera, en munið að ef þið eigið leið norður þá á að koma í heimsókn!... og jú Seli Ben er komin á Hvammstanga, Svanni sést hér endrum og sinnum á pöbbum og Tryggvi hringdi í mig en hann og hundurinn hans búa hér en hann er fjá fmr!

þriðjudagur, nóvember 07, 2006
fimmtudagur, nóvember 02, 2006
Það gerist aldrei neitt á Kúbublogginu nema þegar verið er að plana partý! Hvurslags!
Ég kem ekki á Klakann fyrr en 16. des svo ég beila á enn eitt partýið!
Héðan er annars allt gott að frétta, busy busy að reka heimili með 2 litla stubba... en ég læri þetta að lokum... fæ einhvern tíman aftur tíma fyrir sjálfa mig og sofa heila nótt!!

miðvikudagur, nóvember 01, 2006
mánudagur, október 30, 2006
takk fyrir boðið eddzer........ kem hins vegar alveg örugglega ekki þar sem við Hildur erum að koma frá útlöndum, nánar tiltekið Berlín, föstudagskvöldið 1.des, lendum á KEF rétt fyrir miðnætti !
Góða skemmtun allir sem ætla að kíkja (reikna með rífandi fjöri nema hvað!!) - hvað er annars að frétta ?

miðvikudagur, október 25, 2006
laugardagur, október 14, 2006
föstudagur, október 13, 2006
mánudagur, október 09, 2006
mánudagur, október 02, 2006
föstudagur, september 29, 2006
Það borgar sig að mæta :)
Fengum alveg frábæran mat, holugrillað og forrétt.
Svo fengum við ís og ávexti og rjóma í eftirrétt.
Sögurnar verða örugglega ryfjaðar upp næst.
Nú er mín loksins á leiðinni til Brussel!!! Fæ að fara á fund hjá evrópusambandinu um miðjan október. Ella.....ertu kannski á leiðinni á fæðingardeildina þá? Verð að hitta á þig og segja þér allar sögurnar úr kúbupartýinu, múúhahahaha.

mánudagur, september 25, 2006
Tvö nöfn: Roy og litli bróðir hans, sem ég man ekki hvað heitir :) standa uppúr, allt annað féll í skuggann, man ekki meir, jú okkur var boðið í bíósýningu á heimili Roy í haust, forsýning á frumsýningu sígildar myndar um líf og störf Roy !!
Ég ætla ekki einu sinni að reyna að útskýra "lita bróður"-kaflann, en það er enn ofar mínum skilningi hvernig er hægt að tala jafn mikið um einn mann sem enginn þekkir neitt að ráði, sjæsen, kæsen, fræsen !!
Jú, maturinn var geggjað góður - eddi við komumst glettilega vel af án þín :)
Nóg var tekið af myndum, ritskoðun hjá Mörtu stendur yfir !

Segi sama og Ella, myndir sögur og fyllerý og læti eða hvað...ég ´sa missed call frá Gömlu 1.34 á laugardagsnótt sem er afar jákvætt. Ég var náttúrulega búin að lofa að hringja en komst ekkert enda upp fyrir haus í eldhús smíðum og veseni og löngu sofnaður um þetta leyti....en var ekki gaman!! Mútter vill vita allt!!!!!
föstudagur, september 22, 2006
sælar...... við BT vorum að spjalla og munum redda matnum að sjálfsögðu, stórt læri og meðlæti með !
Síðan er allt eins líklegt að BT ætli á bíl og vilji fara í bæinn seint um nóttina, þannig að ætli við tveir rúntum ekki bara Lyngdalsheiðina og hittum ykkur stelpur upp í bústað, hvernig líst ykkur á það...... mæting þar um kl. 17.30 ?
Verðum í bandi á morgun, ég er með gsm. 691-3313.

fimmtudagur, september 21, 2006
miðvikudagur, september 20, 2006
þriðjudagur, september 19, 2006
Ég þarf að vera heima á sunnudeginum svo að ég býst ekki við að gista með ykkur. En mig langar að fá mér eins og einn Mohito með ykkur svo að ég myndi alveg þiggja að sitja í með ykkur í bústaðinn og svo ætla ég að reyna að blikka einhvern til að skutlast eftir mér. Hver vill taka mig með???
Ef Marta ætlar að sjá um forréttinn (ef hún er ekki með neitt sérstakt ákveðið þá er ég með fullt af hugmyndum :)) og strákarnir um aðalréttinn á ég þá ekki bara að sjá um eftirréttinn?
Ætla einhverjir að sjá um að versla eða eigum við að skipta verlsunarferðum á milli okkar? Hvað viljið þið þá að ég versli?
Ohh ég hlakka svo til að sjá ykkur, ekkert smá langt síðan síðast!!

vá.... takk fyrir allar kveðjurnar :) ekkert smá gaman að heyra þær.
já, nú líður að bústað.... aðalmálið er hverjir geta verið á bíl og hvenær eigum við að leggja í hann ? miður dagur á laugardeginum hentar mér ágætlega... við erum sennilega rúman einn og hálfan tíma að rúnta þarna upp eftir, með stuttu stoppi á Selfossi !
líst vel á verkaskiptingu, hver og einn (eða þeir saman sem vilja) kemur samt með drykkjarföng handa sér....

Til hamingju með þetta Lilli minn, þetta gastu. Endalausar gleðifréttir skekja kúbufamilíuna og ég orðinn afi í enn eitt skiptið. Það líður að bústað - eru ekki allir í stuði. Ég veit ekki hvað ég get verið lengi um helgina, verður bara að koma í ljós. Við notum helgarnar óspart til að flytja dót yfir í nýja bílskúrinn. Ég reikna því frekar með að koma á laugardeginum upp eftir.
mánudagur, september 18, 2006
föstudagur, september 15, 2006
fimmtudagur, september 14, 2006
miðvikudagur, september 13, 2006
þriðjudagur, september 12, 2006
Eddi, miður að þú og Inga og að sjálfsögðu Belgíu-Ella komist ekki........ en við hin munum að sjálfsögðu halda uppi stuðinu og skála fyrir ykkur, líst vel á holugrillað lambalæri - BT við rústum því !!
Var annars í Brekkuskóg fyrstu helgina í sept. í A-bústað (46 fm) og þeir eru bara fínir og duga alveg fyrir 6-10 manns þannig séð.... 2 svefnherbergi og stórt svefnloft, pottur og fínn pallur.
Annars er komið að mínum núna að flytja tíðindi, - Lilli fylgir hinum í kúbufjölskyldunni að og stefnir á fjölgun !! Já, já, Hildur mín er ólétt, komin rúma 3 mánuði á leið og er sett eftir fyrstu sónarskoðun, 11. mars 2007 - mikil hamingja á heimilinu og tilhlökkun :)))
Hlakka svo til að fara í bústað með ykkur eftir tæpar 2 vikur, verðum í bandi þegar nær dregur, adios amigos !

mánudagur, september 11, 2006
Þið eruð æði!!! Búin að redda bústað kokk og öllu!! Mig langar ógeðslega og er á leið suður í dag en fer svo aftur á miðvikudag. Varðandi okur innanlandsflug, ég fer ekki öðruvísi en með ferðabeiðni og þá borgar bara HA :) Nei annars er alltaf hægt að vera heppinn ef maður er með góðan fyrirfara og sveigjanleguer með tíma að ná góðum netsmell (svoan 10.000 fram og tilbaka frá AEY), nú eða ef eru nokkrir saman þá kostar ekkert að keyra og er bara stuð....
Já já ég er að segja: Koma til Akureyrar í nóvember. Ég verð að beila á bústað vegna þess að ég er að fara núna suður, reyndar bara í 3 daga v/vinnu, en svo verð ég 3 vikur í okt í Finnlandi og get varla réttlæt fyror sjálfum mér og konu (og veiðifélögum sem ég hef svikið um gæsaveiði) að fara helgi í djamm suður þegar nóg er eftir að vinna og minns burtu allan okt.
Annars gengur afar vel, ég er búin að leggja sökkla undir nýja eldhúsinnréttingu, búin að mála alla neðri hæðina (bara nokluð vel þó ég segi sjálfur frá Gamla :), tók gamalt spóna parkett og lakkaði fimm sinnum og það er 'vangefið ýkt flott' svo ég bæti orðfæri Brekkuskóla táninga, sem hinn harðmælti Steinarr hefur tileinkað sér (ásamt harðmæli) á innan við 2 vikum í skóla, sumsé allt gott frá Ak.
Dags. á partý í nóv kemur með mánaðar fyrirvara allavega :)

þriðjudagur, september 05, 2006
föstudagur, september 01, 2006
Æi þið eruð svo skemmtileg!
Endalaus stemming í kringum ykkur. Ég mun verða dugleg að koma suður í vinnuferðir og þá heimta ég partý. Passa mig að koma alltaf á föstudögum og fara ekki fyrr en allavega daginn eftir. Það er ekki einu sinni hægt að búa til Mohito á Egilsst. Allt annað er gott samt :-)
Vá hvað ég er ánægð að vera ættleidd inn í Kúbufjölskylduna!

Vá hvað þið eruð öflug, bara komin með bústað, matseðil, kokk og læti!
Væri sko alveg til í að vera með ykkur.... það er orðið alltof langt síðan síðast! Já, held ég hringi bara í Nató og tékki á þyrlunni, hljóta að geta skutlað mér norður í ballarhaf!
Án gríns, ég mun liggja upp í sófa með stóru bumbuna mína og hugsa stíft til ykkar! Endilega takið myndir og sýnið mér á eftir!

fimmtudagur, ágúst 31, 2006
Ég ætla að sjálfsögðu að mæta, missi ekki af enn einu partíinu!
Ég segi nú bara eins og Marta hef fulla trú á strákunum og eldamennskunni. Ef það er áhugi á hafa forrétt þá luma ég á uppskrift af sjávarréttasúpu "a la Grand Hotel". Hún er mjög góð og mjög auðveld, klikkar ekki.
Eddi, Inga og Ella ykkur verður sko sárt saknað.

flott, flott, flott.... við strákarnir reddum matnum ef Edz er fyrir norðan ;) hef samt enn fulla trú á að hann láti sjá sig, sleppir ekki svona tækifæri til að steikja í liðið góðan mat - brunar yfir Kjölinn á sínum fjallajeppa upp úr hádegi á laugardeginum og beint í bústaðinn í Brekkuskógum, Edz - hljómar eins og gott plan ?
miðvikudagur, ágúst 30, 2006
Búin að pannta og borga!!!!
þurfti að vera frá föst .. það var búið að pannta stóra´bústaðinn en þessi er fínnnnn!!!
Brekkusk. nr. 28 Dvergabr.Pott
22.09.2006 - 24.09.2006
Komutími:
Brottför:
Til greiðslu :
8.000 kr.
Húsið skiptist í 2 svefnherbergi, stofu, forstofu, eldhús og baðherbergi með sturtu auk þess er svefnloft. Við húsið er stór útipallur ásamt fjórum sólstólum, borði og kolagrilli og heitum potti. Leigjandi hefur orlofshúsið frá kl. 18:00 á komudegi til klukkan 12:00 á hádegi brottfarardags. Gert er ráð fyrir að gestir komi milli klukkan 18:00 og 22:00 á komudegi. Lyklar eru afhentir í Brekkuþingi hjá umsjónarmanni gegn framvísun leigusamnings. Greiðslukvittun gildir sem leigusamningur. Geti gestur ekki komið á ofangreindum tíma á hann að hringja í umsjónarmann og semja um annan komutíma. Síminn er 486-8801. Lykli og tuskum skal skilað í þjónustumiðstöðina við brottför. Við brottför þurfa gestir að skilja lykla eftir í húsinu og læsa á eftir sér. Gestir eiga að hafa með sér salernispappír. Telji gestur húsið illa þrifið þegar hann tekur við því eða ef eitthvað er bilað skal hann strax gera umsjónarmanni viðvart. Minnisatriði fyrir brottför: Gestir eiga að skila húsunum hreinum og snyrtilegum, þrífa vel ísskáp og salerni og þvo gólf. Loka á gluggum og dyrum. Rusli þurfa leigjendur sjálfir að losa sig við í ruslagám niðri við þjóðveg.
VALLLA!!!

Þetta er náttúrulega hrikalegt okurverð fyrir innanlandsflug. Það fer greinilega lítið fyrir samkeppninni um þessar mundir. Annars er ég til í bústað (þarf ekki að taka flug þar sem nýja húsið er á sv horninu, nánar tiltekið í Furubyggð 38 í Mosfellsbæ).
Eins og myndin sýnir er húsið inn í miðjum skógi, sólskáli er út úr stofunni til suðurs, á efri hæðinni er svefnálma og síðan er risherbergi sem gæti nýst t.d. sem koníakstofa. Semsagt, eitt með öllu.
mánudagur, ágúst 28, 2006
Hæ.
Það væri gaman að koma en var fyrir stuttu í bænum og maður getur víst ekki leyft sér þann munað oft að fljúga á milli. Er annars eðlilegt að borga 23.990 fyrir flug fram og til baka til Rvk? Það er ekki eins og þjónustan sé margra þúsund kalla virði. Reyndar fékk ég súkkulaðimola með kaffinu. Af hverju í ósköpunum er verið að hafa þessar flugfreyjur með? Getur aðstoðarflugmaðurinn ekki tautað eitthvað í hljóðnemann og bent manni á upplýsingarit sem nauðsynlegt er að kynna sér áður en maður fer í loftið. Hann getur svo tekið eitt rölt ef það er bráðnauðsynlegt og tékkað hvort allir séu með beltin spennt og svona.... Ég myndi alveg getað fórnað flugfreyjunni og kaffinu fyrir ódýrara flug. Við erum nú bara að tala um klukkutíma...

edddzz....... þú tekur flug um morguninn og við pikkum þig upp á Rvk.flugvelli og brunum í bústað ;) hvað ertu annars aftur að fara sýsla við núna, man ekki hvað þú sagðir, það var samt eitthvað voða flott, forstöðumaður og alles........ !
BT, Inga, Hildur, hvað með ykkur ?
líst ágætlega á helgarreisu norður í nóv., væri flott að fá dagsetningu á það með smá fyrivara svo það geti gengið upp :)

laugardagur, ágúst 26, 2006
Nú er minns bara fluttur norður og situr á nýju fínu skrifstofunni og horfi yfir pollinn í veðurb´liðunni norðan heiða. Ég verð að reyna að komast í bústað en það gæti verið erfitt þar sem ég stend í breytingum á húsnæði og svo er ég nú líka að stinga af allann október til Finnlands, svo það er verra að vera alltaf 'ekki heima'
Allavega gaman að heyra frá öllum og ég mun koma með myndir af nýja slotinu innan dyra eftir breytingar. Svo er innflutningspartý þegar allt er um garð gengið í nóvember og öllum boðið ... hópferð Kúbufam til Ak.????
æði ?

fimmtudagur, ágúst 24, 2006
B.T til hamingju með húsið, það er naumast að við erum að verða fullorðið fólk hérna. Fólk að kaupa hús og eiga fullt af börnum. Gleymdi því nú eiginlega að Eddie er í raun að koma með 3. krógann, þannig að það verður engin keppni :)
Gamla er komin í gírinn, þá verð ég nú að fara að gíra mig upp líka. Er alveg til í nokkra kokteila og grill. Get ekki séð betur en að 23.sept sé bara fj.. góð helgi. Eru ekki allir með?

Vá hvað það er búið að gerast mikið!!! Allir til hamingju með allt!!!
Það er komin tími á hitting!!! ég tékkaði á brekkuskógi og það er laust 23 sept! hvernig líst ykkur á það? ??? Látið heyra í ykkur og eg bóka pleisið :)=
Eru svo ekki líka 2 innflutningsparty á næstu mánuðum? mamma fyrir norðan og pabbi.. hhmm á s-v horninu.... ?????
Dauð langar í kokteila og læti ;)

sunnudagur, ágúst 20, 2006
hæhæ
rosalega erum við öll dugleg að skrifa!! Til hamingju með húsið BT, hlakka til að mæta í kúbupartí þangað :) Er ekki annars farin að koma tími á hitting, væri alveg til í Mohito núna. Fyrsti skóladagurinn á morgun hjá mér. Er að fara að kenna 7.bekk, s.s. 12 ára krökkum sem eru með allskonar hormónaflækjur, rosa stuð. Telma Björg komin til dagmömmu og allt svona að komast í fastar skorður.
Hvað segið þið hin, eru ekki allir að koma úr sumarfríum og svona???

þriðjudagur, ágúst 08, 2006
Sælt veri liðið
Þá er rútínan byrjuð eftir mánaðar langt sumarfrí, bara nokkuð fínt fyrir utan veikindi í nærri öllu fríinu. Fyrst byrjaði Karl Trausti með alltof stóra hálskirtla sem á að kippa úr og svo ég með hálsbólgu dauðans. En það birtir upp um síðir og restin af fríinu fór í að selja íbúðina okkar í Dvergholti í Mosfellsbænum og á sama augnabliki var keypt 170 fm raðhús með öllu tilheyrandi. Loksins kominn í húsið til að bjóða til almennilegrar kúbugleði. Það verður stefnt á innflutningspartí Kúbufjölskyldunnar við tækifæri. Við flytjum reyndar ekki inn fyrr en 1. október.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)