þriðjudagur, mars 15, 2005

Já, það er merkilegt hvað það er alltaf þögult eldhúspartýið okkar... yfirleitt eru þau það nú ekki. Frekar að það sé slegist um hver megi tala næst!!!! Kannski er þetta skortur á kokteilum!

Var að skoða dagskrá ráðstefnunnar. Það væri nú gaman að mæta! Aðallega sýna sig og sjá aðra. En nei, ég verð í því að læra undir þetta blessaða GMAT próf sem ég á að fara í í næstu viku. Gúlp! Nóg af allskyns flókinni stærðfræði m.a. og ég kann ekki rassgat! Fyrirgefiði frönskuna. Óska eftir einhverjum til að galdra helv.... stærðfræðina inn í hausinn á mér svo ég skilji hana! Á meðan ég reyni að læra leikur drengurinn lausum hala og er búinn að rústa íbúðinni.

BTW, ég er búin að bóka flug á Klakann 28. apríl og til baka til Flata Landsins 10. maí. Eruð þið geim 30. apríl????

Engin ummæli: