þriðjudagur, júní 19, 2007

Til hamingju með daginn stelpur.
Jiminn. Það er ýmislegt að gerast.
Til hamingju með þetta allt saman! Nafnið, vinnuuppsögn, Ísafjörð, fæðingarorlof, DK og landslagsarkitekt. Er ekki málið að Kúbufjölskyldan fari í verslunar/bjór - ferð til Bödda og co? Sveitin er æði.

sunnudagur, júní 17, 2007

Sælar elskurnar, nóg að skrifa um hjá mér í þetta skiptið. Er búinn að vera á leiðinni að skrifa en búið að vera svo brjálað að gera. Við fjölskyldan erum búin að skíra litla drenginn okkar og fékk hann nafnið Ísak Helgi :) meira á síðunni hans á barnalandi nr. 59373.

Einnig erum við búin að selja ofan af okkur í Grafarvoginum og flutt til Ísafjarðar (tímabundið í sumar hjá tengdó), þar sem við erum að fara til Danmerkur í haust, Kaupmannahöfn. Ég er að fara í nám í landslagsarkitektúr ef ég kemst inn (á frekar von á því en hitt, fæ svar loks í byrjun júli), ef ekki - þá fer ég í Kort- og landmælingatækni í KTS. Spennandi tímar framundan og vonandi ef einhver er í Köben að hann hafi samband, alveg gistipláss í íbúðinni fyrir áhugasama :)

Ég hætti í vinnunni, hjá skipulags- og byggingarsviði 31.maí sl., eða reyndar hætti ég ekki formlega fyrr en um miðjan des. þar sem ég er núna í sumarfríi og fer svo í framhald af því í fæðingarorlof, sniðugt þetta fæðingarorlof - gott að geta nýtt sér þetta svona vel :)

Þessi maí mánuður og síðustu mánaðarmót voru alveg klikk, skírðum Ísak Helga 19.maí, losuðum íbúðina 30.maí og fórum til Köben í smá ferðalag 1. - 8. júní og svo gistum við hjá pabba mínum í Rvk. í nokkrar nætur og fórum svo í beinu framhaldi nánast af Köben ferðinni til Ísafjarðar og veðrum þar í sumar :) Loksins komin í ró og næði og sá litli fílar það alveg í tætlur, voða góður og sprækur - sveitin er fín, ég held ég sé smá sveitamaður í mér !

Erum búin að redda okkur flottri íbúð rétt hjá Islands brygge svæðinu sem er nokkuð nálægt centrum Köben, Strikinu og því svæði, og svo er innan við 3 km í skólann minn. Við förum út 15.ágúst.