fimmtudagur, júlí 29, 2004

Halló!  Hvar eru allir?
Sakna ykkar... sniff....   Sobbing 






þriðjudagur, júlí 27, 2004

Slúður!  Myndir!  Meira slúður!  Djúsí sögur!
Hvernig var partýið?

laugardagur, júlí 24, 2004

Hvað kom yfir ykkur elskurnar mínar?  Þjáist þið af mömmu-leysi í eldhúsinu?
Bið að heilsa í bæinn...  og munið svo að drekka fyrir mig eins og einn Mojito, þjáist af Mojito skorti!

föstudagur, júlí 23, 2004

Púfff, kúbukvöldið sprakk og breyttist í partý heima hjá mér.
Við gömlurnar munum byrja tjúttið þar kl 6. Komið með drykkjarföng með ykkur ef þið viljið, og svo pöntum við pizzu :)

fimmtudagur, júlí 22, 2004

Afsakið kvöldið... halló hef ekkert verið á netinu síðustu dagana vegna anna. Er nefnilega kominn í sumarfrí og er búinn að vera mála og stússast í íbúð sem ég var að kaupa um daginn í Grafarvogi og var að fá afhent sl. þriðjudag !
Hef því lítið getað kíkt á síðuna síðustu daga og tekið þátt í undirbúningi hittingsins um helgina !
BT hringdi hins vegar í mig í dag og var staddur fyrir norðan í Þingeyjarsýslu og óvíst hvenær hann kemur í bæinn. Hann lofaði að láta mig vita sem fyrst. Eitthvað virðist ætla að verða fámennt á laugardag en vonandi að það rætist úr því.
Ég verð alveg á fullu á laugardag að mála en ætla að vera laus um sex í síðasta lagi en get ekki verið á bíl þannig að það er spurning hvernig maður reddar sér suður á Selfoss í heita pottinn ! Ég verð annars svo sóttur um nóttina kannski um 2-3 leytið þannig að ef einhvern vantar far í bæinn þá er það velkomið. Við verðum í bandi gott fólk !

Ég er í langtímafríi....  :-)
Nei nei, ég bara kíki orðið svo sjaldan í tölvuna, bæði til að svekkja mig ekki á að komast ekki í hittinginn... og svo er maður líka úti að sleikja sólina.  Sól og sumar er loksins komið og þá er maður hreinlega að bráðna!
Hljómar allt hrikalega girnilega sem þið eruð að stinga upp á, væri til í að komast.
En hins vegar mæti ég á Klakann 12. ágúst og verð alveg til 12. sept!  Óska eftir að hitta sem flest ykkar á þeim tíma! 
hvernig er það, eru allir komnir í sumarfrí?? Er ég kannski bara sú eina sem hef ekkert að gera í vinnunni nema að kíkja á bloggið og láta mig hlakka til pottapartí??  Hvernig líst ykkur á að baka nan brauð með fiskinum og/eða salatinu? Ég kann að baka alveg hrikalegt gott brauð ef þið fílið svoleiðis? 

þriðjudagur, júlí 20, 2004

maður fer nú bara að skæla yfir þessu ollu saman.. fyrst sósan svo er maður bara rassskelltur í beinni á netinnu!!!!! hvurslags systir er þetta...en þar sem hún var sammála mér um vínmagnið sem við "þyrftum" að kaupa veit eg að stuðningsaðilan minn stendur sig (þó að hún sé hætt að fá borgað fyrir það!!!  en lýst vel á borgunar planið 3000 kall er rosa fínt.. lilli lætur vita hvert á að leggja inn...
Mér finnst uppskriftin hennar Hildar rosa girnileg. Hvernig lýst ykkur á að við förum í matar og mjólkurbúð á laugardaginn áður en við keyrum til Selfoss?
Jamm keyra til Selfoss, Daddy cool, ætlar þú að vera á bíl?
Hvenær eigum við að leggja af stað? Kannski bara strax eftir hádegi? Nýjustu fréttir herma að Eddi sitji upp með einhverja tjékka í fanginu þangað til fram á kvöld og komist því ekki í matinn. Hann ætlar svo að bruna til okkar þegar hann er búinn að losa sig við þá. Við verðum því 5 í matnum.
Ég er með tillögu að nýju borgunarfyrirkomulagi fjölskyldunnar, við borgum 3000 fyrirfram inn á reikning hjá ábyrgum aðila (sorry Marta)  og svo ef við eigum afgang þá fer það bara uppí næsta kúbudjamm. Mig langar helst að kjósa Lille bro í þetta hlutverk, hann er alltaf svo ábyrgur. Hvað segið þið um þetta fyrirkomulag?
Mér finnst líka að strákarnir eigi að koma með sína eigin brjóstahaldara í þetta skipti.
Ég er nú ekki neitt rosa fiskfan en finnst humar voða góður. Hér er ein uppskriftir sem er girnileg en ég hef ekki prófað hana.
 
Sjávarréttir á teini
 
1 kg skelflettur, soðinn humar
250 g hörpudiskur
250 gr. stórar rækjur, skelflettar
60 gr. smjör brætt
2 msk. Fínt söxuð steinselja
2 msk. Sítrónusafi
4 stk. litlir tómatar
Salt og pipar
 
Matreiðsla Sjóðið hörpudiskinn við vægan hita í sítrónusafanum og smjöri. Setjið humar, rækjur, hörpudisk og tómata á grillpinna. Penslið sítrónu-smjörblöndunni yfir. Grillið við miðlungs hita í 10-15 mínútur, snúið reglulega og penslið. Stráið steinselju yfir áður en rétturinn er borinn fram.
 
Borið fram með hrísgrjónum.
 
Eini gallinn er auðvitað að humar er rándýr og kannski risarækja líka, hef aldrei smakkað hana.
 
Endilega komið með aðrar hugmyndir....
 

mánudagur, júlí 19, 2004

lýst rosalega vel á ættleiðingunna! verðum við ekki að fara í einhverskonar mat til að sanna að við erum "hæf" fjölskylda?? eða amk mom and dad hehe...
hugmyndirnar af matnum eru brill.. er samt frekar svekkt að þið viljið ekki fá góðu sósunna mína aftur!!!...  hvernig er með uppskriftir á aðalrétt????? eigum við ekki að fara að dundra þeim inn á netið??

föstudagur, júlí 16, 2004

Oh oh oh oh.... langar líka!
Held ég tékki á Nato hvort þeir eigi ekki eitt stykki þyrlu til að lána mér.    Sniff sniff.
Samþykkt að ættleiða Ingu, hún er stærsti (og eini) aðdáðandi fjölskyldunnar, góð viðbót. 

Með Pina Colada úr kókosmjólk, hafið þið prófað að skella öllu gumsinu í blandara?
Nammmmm, líst rosa vel á matseðilinn og ennþá betur á að ættleiða Ingu :) Vonum bara að henni lítist vel á það líka. Og til hamingju með nöfnin Inga, æðislega falleg.
 
Hlakkar ekkert smá til um næstu helgi, það er sko alveg komin tími á að fá sér einn eða tvo öllara, held að ég hafi bara varla fengið mér í glas síðan í síðasta pottapartí, þetta gengur náttúrulega ekki.

fimmtudagur, júlí 15, 2004

Varðandi Pina Colada þá bendi ég á þetta, ég prufaði einn svona um daginn þetta er nokkuð ferskt sko ! http://www.vinbud.is/index.jsp?ib_page=7&iw_uri_478=http://pottur.strengur.is/cgi-bin/vinbud.storefront/40f6a3a4000189822741c104d08506a4/Product/View/08760?iw_language=is_IS

Líst vel á matseðilinn... þetta getur ekki klikkað !!
Svo varðandi matseðilinn, hér er tillaga:
Forréttur:
Salat með ruccola, ristuðum furuhnetum, cherry tómötum, rauðlauk og risarækjum. Dressing úr soyjasósu, hindberjasafa og balsamedik.
Aðalréttur:
Grillaður allskonar fiskur með tzatziki (gúrku og hvítlaukssósa án vanillujógúrts) og kartöflum
Eftirréttur:
Eplapæ að hætti Hildar.

Ég nenni ekki að skrifa alla drykkina alls staðar inní prógramminu. Ég sting uppá hvítvíni, strawberrry margarita, mojito og pina colada. Nema að það er eitt vandamál með pina colada, kekkist alltaf ef við notum kókosmjólk. Veit einhver góða lausn á því máli?
Til hamingju Inga!! Þetta eru rosa sæt nöfn. Ég var fyrst að kíkja í gestabókina núna, datt ekki í hug að einhver hefði skrifað.
Hvað finnst ykkur um að ættleiða Ingu?
Hmmmm gleymdi einu, það þarf víst að spyrja Ingu líka. Inga, þú lætur bara vita hvort þú vilt vera með :)
Mig langar til að óska Ingu Jóns hjartanlegu til hamingju með skírnina á dætrum sínum (eins og fram kemur í gestabókinni okkar): Tinna Sóley og Rakel Birta. Gullfalleg nöfn að hætti hússins ! Mér finnst nú ef að Inga er til þá er hún meira en velkomin á Selfoss þar-næstu helgi ? Aðdáandi síðunnar nr.1 ætti eiginlega að vera heiðursgestur kvöldsins !!

miðvikudagur, júlí 14, 2004

Hvar er daddy cool? Ég sendi honum póst á háskóla emailið. Er einhver búinn að heyra í honum með partýið?

þriðjudagur, júlí 13, 2004


Verður svona stemmning 24. júlí ?!?!?!?! Posted by Hello

mánudagur, júlí 12, 2004

Ég er komin heim eftir frábæra Sikileyjaferð, brún einsog kúkur. Flutt í gömlu íbúðina á Eggertsgötu, og er með gamla gemsa númerið mitt, 869 1985. Það verður æði að hafa sjávarrétta þema á kvöldinu okkar. Ég skal gera svona salat, og svo fáum við eplapæ frá Hildi.
Ella, bið að heilsa Viggó.

sumir voru á teiknimyndasafninu um helgina og kíktu við á skrifstofunni hans Viggó Viðutan Posted by Hello

Kapteinn Ella... milljón myglaðar marglyttur! Posted by Hello

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Eddie's coming home, he's coming, Eddie's coming home! Lending 14.00 á KEF ef Icelandexpress stendur sig. Ekkert smá að prumpa í mig af spenning, allt klárt en eitthvað þurftu snillingarnir að bögga mig yfir þrem köflum svo einhverjar tafir verða víst á mér við loka skilin, damn!! Lilli gerir þú ekkert nema fara á tónleika whatsup? Jæja við heyrumst næst símleiðis, netið verður eitt af því sem ekki verður komið nálægt næstu vikur!!

Í gær var skundað á Placebo í Laugardalshöll en sú svala sveit var að halda tónleika þar. Höllin var vel full og Maus að hita upp. Þeir voru ágætir en síðan stigu Placebo á svið og þeir eru sko flott hljómsveit, rosalega þéttir og fóru eiginlega á kostum. Mjög góðir tónleikar í alla staði. Posted by Hello

þriðjudagur, júlí 06, 2004

Því miður gamla en þá er pöbbinn á "eyrinni" víst löngu búinn að leggja upp laupana! Sjallinn er hins vegar aðal staðurinn þarna og svo pizza 67 á daginn sem er við hliðina á Sjallanum... svo er Vagninn á Flateyri náttúrulega alltaf sígildur. Það er víst lítið um pöbba þarna fyrir vestan !!
Argh þarf maður nú að horfa uppá gredduglottið á Bödda á netinu líka! Nei, nei bara svona glens :) myndarkerling þarna! Jamms jamms fiskisúpan hljómar vel og ég kann súper uppskrift að einni góðri, svo má halda áfram með Ocean thema og grilla humra (svona til að nýta grillið fína) með ýmsu gúmmelaði og drekka gæða hvítt með! Salat og pie WE are sorted!! Enn er hinsvegar á huldu um mætinga tíma mútter, reyni að hrista af mér Tékkana sem fyrst en gæti dregist eitthvað, verð að skoða þetta allt en slæ á þráðinn við heimkomu á fös!!
Jú, það var sko kominn tími til!
Þið eruð svo sæt saman :-)

Jæja er ekki kominn tími á að sýna mynd af dömunni ! Hér erum við í góðu glensi sl. laugardagskvöld rétt áður en við hittum Lars Ulrich og félaga á Thorvaldsen !  Posted by Hello
Ég væri til í eitthvað svona sjávarrétta þema ? grilla fisk eða hafa hnausþykka fiskisúpu, nammi namm ! Salatið hennar soccermom hljómaði vel sem og að hafa eplapæ a-la hildur.
Hvernig líst ykkur svo á þetta, Caribbean Twist? http://www.vinbud.is/index.jsp?ib_page=7&iw_uri_478=http://pottur.strengur.is/cgi-bin/vinbud.storefront/40ea77ad0001acf82741c104d08506ab/Product/View/08760?iw_language=is_IS
jamm, hvernig væri nú að fara að huga að matseðlinum. Eigum við kannski að hafa þetta eitthvað einfalt, setja eitthvað gott á grillið? Setja kjöt í einhverja góða mareringu og svo bara á grillið? Ég get gert rosa gott eplapæ ef það er stemming fyrir því í desert. En ein spurning, hvar er BT??? Veit hann af pottapartínu? og veit hann af þessum vef??
Ekkert smá lítið að gera í vinnunni núna, allir í sumarfrí og engin að spá í launin sín eða sjúkradagpeninga eða eitthvað álíka spennandi. Sit bara hér og læt mér leiðast.....Sem betur fer er ég bara að vinna til 12 og get þá farið heim ;) Þetta er algert letilíf að vera að vinna svona hálfan daginn, er sko alveg til í að fara að gera eitthvað meira krefjandi.

en eru ekki einhverjir með hugmyndir fyrir matseðilinn??

mánudagur, júlí 05, 2004

Ja dam eg varð að láta þessa tónleika fram hjá mér fara. Eg er á fullu að undirbúa vestfjarðarferðinna sem hefst í fyrramálið. ég fer inna hin magnaða pöbb "á eyrinni" ef hann er enn á lífi og drekk einn bjór okkur til heiðurs ;) það stittist óðum í lætin okkar.. er komið eitthvað draft af matseðli? er ekki málið að ákv. einhvern þema? svo pabbi mömmu (afi á akureyri) hafi tima til að grafa upp réttu uppskriftirnar ?? :)
Jæja gott fólk ! Þá er maður búinn að upplifa Metallica á tónleikum og þvílíkir tónleikar... allur pakkinn, hiti, reykur og sviti í salnum (minnti mann á gufubað), Metallica með 2 1/2 tíma prógramm og með alla rokk-slagarana sína pottþétta. Sviðið risastórt og ljósasjóvið frábært, 18.000 manns troðfylltu höllina og stemmningin mögnuð. Þetta er eitthvað sem maður hefði ekki viljað missa af, Metallica á Íslandi ég trúi því varla ennþá að þeir hafi verið hérna að spila þessir rokkguðir samtímans !!

sunnudagur, júlí 04, 2004

Jæja Metallica á eftir svaka stuð býst ég við 18 þúsund manns í Egilshöll, getur ekki klikkað ! Ride the lightning...... sá reyndar Lars Ulrich og co. í bænum í gær á Thorvaldsen, svaka töffarar enda ekki við öðru að búast !!

föstudagur, júlí 02, 2004

Sammála lilla bró, það er afskaplega óskemmtilegt hér inni þegar allir eru í sumarfríi. Sakna ykkar!!!
Hér í Belgíu er ekkert sumarlegt, rigning og þrumuveður. Ég ætlaði út en hætti við í dyrunum. Ætli barnið verði bara ekki svæft innandyra í dag...

fimmtudagur, júlí 01, 2004

Rólegt á kúbuvefnum þessa dagana......sumarið er tíminn !