föstudagur, maí 14, 2004

Eurovision drykkjuleikurinn !

Drekka á 2 sopa ef: kynnarnir reyna að vera fyndnir, kvenkyns kynnirinn skiptir um kjól, kynnarnir eyða tíma í samtal sem enginn getur fylgst með, einhver keppendanna er líkur einhverjum sem þú þekkir, einhver keppendanna líkist einhverjum frægum, minnst er á að Noregur sé ekki enn búinn fá stig, Kýpur gefur Grikklandi 12 stig, Noregur gefur Svíþjóð stig

Drekka á 4 sopa ef: söngvari lyftir handleggjunum upp fyrir haus á meðan hann syngur, söngvari er mjög feitur, flytjendur eru í hallærislegum fötum eða með hallærislega hárgreiðslu, söngvari frá Austur-Evrópu er með aflitað hár, sést í geirvörtur í gegnum fötin, flytjandinn frá Möltu er ekki loðinn á bringunni, önnur lönd en enskumælandi flytja á ensku, flytjandi daðrar í myndavélina, flytjandi er ekki frá landinu sem hann syngur fyrir, Frakkland gefur Bretlandi ekki stig, lagið sem fær 8 stig eða hærra er lélegt, Bretland lendir í öðru sæti, flytjendur eru að tala í síma á meðan stigagjöfin er

Klára á glasið ef: Þýskaland gefur Austurríki 1 stig, Ísland vinnur, Noregur gefur Svíþjóð ekki stig, Írland vinnur, ekki er minnst á frið, kærleika eða ást í þýska laginu

Engin ummæli: