Oh oh oh... verð alveg öfundsjúk þegar ég skoða síðuna þessa dagana! LLAAAAANGAAAAAAR með!!!! Inga, gerum díl að við mætum sko báðar næst!!!
Skemmtið ykkur hrikalega vel... Mín helgi verður eflaust í rólegri gír en ykkar. Erum samt búin að bjóða fólki í mat, einmitt honum Kristbirni vini þínum Eddie, en þið hin munið kannski eftir honum, einn af þeim sem mom hafði með í Kúbugeim. Og kærastan hans fær auðvitað að fljóta með. Það á að borða góðan mat og spila. Og eflaust verður hægt að hella upp á fólkið.
Svo ein saga af Kjartani. Veistu Stebba, það smitaðist eitthvað af Halldóri Þór í hann Kjartan. Hann tók eitt svona Halldórs Þórs atriði um helgina. Hann var nýbúinn að borða, allur útmakaður í einhverju kjöt-gulrótarmauki. Svo var minn maður orðinn leiður í stólnum sínum og var skellt á gólfið. Hann skreið beina leið að gardínunum, tók í eina og þurrkaði sér um munninn!!!! Og ekki bara á einum stað. Svo nú eru hvítu gardínurnar með nokkrum fögrum appelsínugulum blettum í ákveðinni hæð!!! Yndisleg þessi börn!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli