miðvikudagur, maí 10, 2006
laugardagur, maí 06, 2006
föstudagur, maí 05, 2006
djók Inga mín... flott hjá ykkur og gangi ykkur allt í haginn, stórt stökk en þú ert nú á leið á heimaslóðir þínar, þannig að þetta verður örugglega gaman !
Ella, þú veist að það er skyldumæting hjá þér ef við plönum hitting meðan þú ert á landinu... við erum nú líka vinir og fjölskylda, kúbufjölskyldan :)
En kæra fjölskylda, endilega planið hitting. Það væri gaman ef það yrði þegar við erum á svæðinu (og ég mundi líklega taka kallinn með, einhver verður að drekka mojito!!!!). Ég veit hins vegar ekki hvort við kæmumst á Selfoss, erum bíllaus! Þetta er stutt stopp og mikið að gera við að hitta alla vini og ættingja. Vil endilega hitta ykkur en það yrði aldrei meira en ein kvöldstund! En endilega planið og við myndum gera okkar besta til að mæta!
ciao úr sólinni og 30 stigunum
Ella
fimmtudagur, maí 04, 2006
Nýjustu fréttir á þessum bæ eru þær að ég, minn maður og börn höfum ákveðið að taka saman allt okkar hafurtask og flytja til Egilsstaða. Erum að leita okkur að helst einbýlishúsi, bæði komin með vinnur og betri laun. Ég reyni að komast með ykkur hvert sem þið farið til að kveðja. Halli fer mánaðamótin maí/júní og ég fer júní/júlí. En meira um það seinna...........
Vitið þið um einhvern sem á rútu og vill eyða deginum með 1 gæs og 20 biluðum vinkonum hennar, þ.m.t. mér og taka sanngjarnan pening fyrir?
Kv, Skringibjörg ( eins og samstarfsfélagar mínir kalla mig þessa dagana).
miðvikudagur, maí 03, 2006
miðvikudagur, apríl 26, 2006
þriðjudagur, apríl 25, 2006
Ég kemst ekki í bústað helgina eftir því þá verður barnaafmæli hér. En hvernig væri að fresta þessu bara þangað til að Ella kemur til landsins (ef Ella hefur tíma til að hitta okkur?)?? Þið eruð meira en velkomin í pottapartí til mín! Og svo get ég líka komið til Rvk, færðin hlýtur að vera sæmileg í júní :)
Stebba, ertu byrjuð að vinna aftur? Við Telma Björg erum alltaf á leiðinni í heimsókn....
sunnudagur, apríl 23, 2006
Ég var að fá dagsetningu á fund sem ég þarf að vera á í Danmörku, og það er einmitt þegar við ætlum í sumarbústað. Ég fer á fund í vikunni fyrir bústaðaferðina og Snorri á að vera á fundi mánudeginum eftir. Þannig að við verðum bara í Danmörku með króana okkar þennan tíma.
Hvað viljið þið gera með bústaðarferð? Þið megið auðvitað fara án mín :(
Ég kæmist helgina eftir, hvað segið þið?
fimmtudagur, apríl 20, 2006
þriðjudagur, apríl 11, 2006
mánudagur, apríl 10, 2006
http://www.flickr.com/photos/89391482@N00/119312114/in/photostream/
þriðjudagur, mars 28, 2006
flott myndasíða, ætla að bæta við myndum - á slatta til að setja inn.... ég á ennþá mín sólgleraugu frá hittingnum hjá mörtu, ekki spurning að maður mætir með þau í bústaðinn !!
var annars á árshátíð hjá vinnunni um helgina, haldin í Rafveituheimilinu í Elliðaárdal, það var bara helv. gaman, svo ætlar minn að skreppa út fyrir landsteinana næstu helgi.... heimsækja og gista hjá félaga mínum sem býr í london og við ætlum að skreppa á leik í enska og pöbbinn og fleira gaman vonandi ! fann þetta flotta ódýra fargjald hjá British Airways sem eru nýbyrjaður að fljúga hingað, einungis 11.500 kr. báðar leiðir :)
sunnudagur, mars 26, 2006
laugardagur, mars 25, 2006
http://www.gpsdrawing.com/gallery/land.htm
Held mér finnist The world's biggest IF það besta!!!
föstudagur, mars 24, 2006
Fór svo í smá netleit og fann fínt myndaforrit fyrir okkur! Sem leyfir okkur að fá svona fínt preview á síðuna!! Ógó flott!
Notendanafnið er kubufjolskyldan og leyniorðið mojito (nema hvað!!!)
Reyndar er líka hægt að stofna grúppu, en þá yrðum við öll að skrá okkur inn sem notendur og vera svo saman í grúppunni (eins og hér á Blogger). Prufum bara hvort þetta virkar ekki fínt!
Setti inn myndir sem ég fann úr síðasta vorpartýi heima hjá Mörtu - allir ýkt smart með sólgleraugun sín!
Ciao í bili, sýnist að þið séuð að skemmta ykkur vel á Vorráðstefnunni!
fimmtudagur, mars 23, 2006
mánudagur, mars 20, 2006
verðum bara að búa til nýja - endilega setja inn myndir, finna ókeypis myndveitu á netinu, ég get svo sett inn það sem ég var búinn að setja inn fyrir nokkru aftur....
ég myndi koma í bústað, reyni að fá Hildi með - kæmi bara í ljós síðar
stebba, til að setja inn myndir með frétt þá veluru add image í stikunni fyrir ofan textagluggann og svo er það nokkuð augljóst framhaldið, velur annað hvort vefslóð eða addar mynd af harða disknum þínum !
pottþétt ekki síðasta bústaðferðin.... verðum að fara lágmark annað hvert ár - helst á hverju ári :)
Takk fyrir kveðjurnar, þið eruð svo sæt. En jamms, ég hef víst lítið betra að gera en að standa í barneignum þessa dagana. Klára bara þennan pakka hérna úti, kem svo heim eftir 3 ár og meika það!!! :-D
Ein spurning, hvað varð um myndasíðuna okkar góðu? Ég var að fletta í gegnum myndir frá í fyrra og datt ofan á myndir frá Kúbukvöldinu okkar þegar ég var á Klakanum í maí. Ætlaði að bæta þeim inn nema myndasíðan finnst ekki!
sunnudagur, mars 19, 2006
föstudagur, mars 17, 2006
fimmtudagur, mars 16, 2006
miðvikudagur, mars 15, 2006
Halló allir! Sorrí hvað ég hef verið löt við að pósta undanfarið. Til hamingju þið sem eigið hamingjuóskir skildar - Böddi og BT fyrir afmælin og BT og Eddie fyrir útskriftir!! Glæsilegt hjá ykkur strákar! Þið hin fáið líka hamingjuóskir bara fyrir að vera þið!!!
En guð hvað ég sakna þess að sjá ykkur aldrei!!! Íslandsheimsóknir verða eitthvað stopular þetta árið, hugsanlega verð ég á ferðinni í júní, það verður kannski hægt að hóa ykkur saman þá?
Annars er bara allt gott að frétta úr Brusslu. Nóg að gera í skólanum, voða skemmtilegt nám nema ég er alveg komin með ógeð á verkefnum og prófum. Svo tók ég líka upp á því að verða ólétt (að vísu planað) svo orkan hefur ekki verið mikil. Þegar ég er búin að læra, sjá um heimilið, sósíalísera og hugsa um strákana mína þá fer allur afgangstími í að sofa!!!! Hlakka til þegar skólinn er búinn og ég get bara einbeitt mér að því að sofa!!! En næsta kríli á sem sagt að koma 5. okt og ég er búin að panta ÞÆGA stelpu í þetta sinn!!! Svo það verður fjör hér á bæ næsta vetur!
Jæja, nóg að sinni, en ég lofa að vera duglegri að láta í mér heyra!
mánudagur, mars 13, 2006
föstudagur, mars 10, 2006
Eina sem er laust er helgin 28-30.apríl !!!!
hvað með þá helgi, gengur það ? ...ef ekki þá er spurning hvort þið vitið um aðra bústaði sem rúma fullt af fólki sem við getum haft afnot af helgina 19-21.maí.
annars þá er Skógarkot hér, sjá mynd.
fimmtudagur, mars 09, 2006
mánudagur, mars 06, 2006
föstudagur, mars 03, 2006
Að öðru... Skógarkot bústaðurinn er enn laus (óvíst hversu lengi) tvær helgar í maí, 5-7 og svo 19-21... eru allir til ? ég er frekar til í síðari dagsetninguna, þar sem ég verð mjög líklega á námskeiði fyrri helgina.... koma svo svara allir, það er voðaleg lægð yfir vefnum um þessar mundir ! Ella hvernig er lífð úti, lítið bloggað frá brussel þessa dagana... ?
þriðjudagur, febrúar 28, 2006
föstudagur, febrúar 24, 2006
miðvikudagur, febrúar 22, 2006
mánudagur, febrúar 20, 2006
mánudagur, febrúar 13, 2006
Takk fyrir kvöldið þið öll, það hefði líka verið gaman að hafa Hildi mína með :-).. en það verður einhverntíman næst.
Í sambandi við bústaðaferð þá held ég að ég fari ekki. Það eru nokkar næturpassanir í bígerð og ég er strax komin með samviskubit. Get ekki bætt fleirum við.
miðvikudagur, febrúar 08, 2006
miðvikudagur, febrúar 01, 2006
Glæsilegt BT - frábært að vera klára núna, til hamingju með það !
Gaman að heyra hvað mörg ykkar ætla að gefa sér tíma til að kíkja í partýið um helgina :)
Bara benda ykkur á að við verðum að loka salnum eitthvað á milli kl. 12 og 1 þannig að endilega koma fyrr en síðar !
Jafnframt er fólki að sjálfsögðu frjálst að koma með eigin fljótandi veigar í partýið ef vilji er fyrir hendi (hins vegar er ansi mikið af bjór í boði og eitthvað af rauðu og hvítu).
Emailið sem ég nota er hildurbj@visir.is og endilega bætið mér á msnið hjá ykkur, er komin með nýja adressu þar, hildur1806@hotmail.com.
Góða skemmtun um helgina.
þriðjudagur, janúar 31, 2006
laugardagur, janúar 28, 2006
Ég er búinn að vera í miklum hamagangi síðastliðnar vikur. Tók þá ákvörðun fyrir löngu síðan að útskrifast núna í febrúar og við það skyldi staðið. Vann í ritgerðinni utan vinnu og eins og gengur og gerist, og lítið gerist. Ákvað síðan í desember að nú skyldi tekið á því og fékk tölfræðing til að analýsera gögnin og fékk niðurstöðurnar fyrir tveimur vikum. Þá var ekki annað að gera en að henda sér í þetta og sit núna sveittur við að skrifa síðustu blaðsíðurnar. Þetta ætlar semsagt að hafast, á að skila lokaeintaki til skorar núna á þriðjudaginn og það verður mikil gleði þegar það er komið. Verð sennilega með vörn 6-9 febrúar og útskrift 25 feb. Reikna með að mæta 4 febrúar.
BT
miðvikudagur, janúar 25, 2006
smá breyting á partýplaninu, það verður 4.feb en ekki 3.feb og mæting er í Lionsheimilinu, Sóltúni 20.
Sendi á ykkur öll e-mail áðan (nema þig Ella þar sem þú ert erlendis, þér er samt boðið ef þú vilt kíkja :) með boði í partýið þar sem allt kemur fram.
Fékk reyndar mail router endursendingu á þitt netfang Hildur, en þú veist af þessu (hvaða netfang notarðu?). Sjáumst hress !
laugardagur, janúar 21, 2006
Það er bara búin að vera eymd í gangi hjá okkur. Við erum öll (nema Snorri járnkall) búin að vera veik, og erum enn. Árni litli fékk lungnabólgu ofan í pestina, og líklega rs vírus. Hann er sem betur fer stór og hraustur og er að ná sér hratt :)
Ég tek frá 3.feb og vona að þið mætið öll. Svo held ég að byrun mars fyrir matarboð sé fínt plan, setjum niður dagsetningu.
skrifa meira seinna, ætla að fara að borða indverskt take away, athuga hvort það rífi ekki pestina úr mér.
mánudagur, janúar 16, 2006
Mæti 3. feb allavega, hverjir koma memm, minns verður á bíl...:)
föstudagur, janúar 13, 2006
Verðum með matarboð síðar, endilega samt skrifa hérna á síðuna, annars verður aldrei neitt úr þessu.
Ekki örvænta samt, takið frá föstudaginn 3. febrúar vegna 30 ára afmælispartý - staðsetning og endanleg dagsetning koma síðar en mjög líklega verður það 3.feb í Bragganum út í Nauhólsvík, sem er kallaður að ég held Flugröst, og er bara flottur salur skilst mér !!
Heyrumst, húllerí, swing... góða helgi
fimmtudagur, janúar 12, 2006
Mikið væri ég til í að hitta ykkur en þori engu að lofa þar sem að allt fer eftir veðri og færð. Helgina 22. jan. verður reyndar pabbahelgi hjá okkur en ef það verður gott veður þá getur bara vel verið að ég stingi af og hitti ykkur.
Annars er allt gott að frétta af okkur. Núna er ég loksins komin með tölvu aftur og þá verður maður vonandi duglegri að láta heyra í mér.
mánudagur, janúar 09, 2006
Hvað segiði um 20. eða 21. janúar fyrir hitting ?... helgin þar á eftir gengur ekki fyrir stebbu og snorra og svo verð ég víst gamall 30' something (gúlp!) 30 ára - 5.febrúar nk ! Ég stefni á afmælisveislu þá helgi (laugardaginn 4.feb) - þið komist sem flest vonandi - læt ykkur vita síðar með stað og stund.
Ef 20. eða 21. janúar gengur ekki fyrir hitting heima hjá mér og Hildi þá er spurning með byrjun mars (helgin 18-19.feb gengur ekki fyrir mig), það verður reyndar árshátíð í vinnunni hjá mér 25.mars, en langt í það !
laugardagur, janúar 07, 2006
Ég er til í mat og drykk, er ekki neitt bundin af tíma.. nema Snorri er í burtu 27.-29. jan, þannig að aðrar helgar væru betri.
Hlakka mikið til að hitta ykkur, og mér finnst að við ættum að taka þessa ágætu maka okkar með sem oftast.
föstudagur, janúar 06, 2006
Varðandi et og drykk er ekki bara Böddi sem segir og við vælum þá og fáum því breytt ef allt er í volli þann dag...
miðvikudagur, janúar 04, 2006
sunnudagur, janúar 01, 2006
Get ekki sagt að þetta séu bestu áramót ævinnar. Ég sá þó flugelda - úr hjónarúmi tengdaforeldra minna með mjög hátt undir höfðinu. Fínt útsýni þaðan. Ég sagði við mömmu í síðustu viku þegar hún var að depast úr einhverri pest að ég væri búin að vera svo heppin þetta ár. Aldrei veik. Þá ákvað einhver að refsa mér fyrir þessi orð og ég steinlagðist í rúmið með 40 stiga hita á Gamlársdagsmorgun.. Gat ekki smakkað kalkúninn, gat ekki skálað nýja árið inn, og verst af öllu.... gat ekki sungið í Sing-Star. Og ég sem hefði unnið ;-) Þar sem ég hef engan tíma vinnu- né fjölskyldulega séð að vera veik - þá æddi ég til læknis í dag sem greindi streptókokka. Núna er ég farin að bryðja tveggja vikna birgðir af penisillini og bíð eftir að mér líði betur. Þessir streptókokkar hafa mjög undarleg áhrif á hausinn. Ég lá upp í sófa fyrr í dag og ákvað að leigja á Skjánum myndina The First Daughter (þar sem ég var nú ein heima). Hún er með Katie Holmes og einhverju krútti sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Yfirleitt horfi ég ekki á svona Cinderella myndir, hvað þá með Katie Holmes sem ég set í flokk með Söndru Bullock sem mest pirrandi leikkonur heims. En hvað um það .. Þegar myndin var hálfnuð byrjuðu tárin að streyma og það er alveg sama hvað ég reyndi að hætta og þurrka tárin og segja við sjálfa mig "díses viltu hætta þessu!!!" þá fóru tárin ekki. Ég viðurkenni að ég græt oft yfir myndum, sorglegum eða sætum en ég hef aldrei grátið jafn mikið og yfir myndinni First Daughter. Ég er farin að brosa yfir þessu núna, kannski 1. penisillin taflan sé farin að virka...
föstudagur, desember 23, 2005
Elskurnar mínar, gleðileg jól!! Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar!Hér fór allur jólaundirbúningur í skrall, Kjartan búinn að vera veikur í viku og svo varð ég líka veik. Hrafnkell var búinn að fá frí í vinnunni síðustu dagana fyrir jól og við ætluðum bara að vera að frílista okkur í bænum, meðan Kjartan væri á crèche og undirbúa jólin í rólegheitum. En enduðum á því að stroka allrækilega út af listanum okkar og redda því bráðnauðsynlegasta í dag og á morgun. Ekkert stress, bara minni flottheit! Fyrir vikið verða jólagjafirnar til hvors annars loforð (sem verða vonandi efnd í rólegheitum milli jóla og nýárs!).
Jeps, life is what happens to you while you're busy planning something else!
Þrátt fyrir erfiða byrjun er ætlunin að njóta jólanna, borða góðan mat, liggja í leti yfir bókum (eða Stubbunum fyrir suma fjölskyldumeðlimi), fara í góða göngutúra og almennt slappa af!
Vona að þið gerið það sama.... enn og aftur gleðileg jól!
fimmtudagur, desember 22, 2005
fimmtudagur, desember 15, 2005
Allavega gleðileg jól og við þiggjum heimboð hjá Bödda eftir jól of-course?? og munið! ef sést skína í rauða skotthúfu er best að taka út hólkinn.
miðvikudagur, desember 14, 2005

Lífsmark!!! :) Ja það er tilvalið að hittast eftir jólinn! Enda verður maður búin að troða sig svo út .. og engin ástæða til að hætta þvi þó hátíðn verði liðin.
Þá getum við farið að plana Bústaðarferðina:) En elsku fjölskylda min .. Gleðileg jól... étið og drekkið eins og engin sé morgundagurinn. Takk kærlega fyrir árið sem er að líða... Eins og öll hin árin höfum við staðið okkur rosalega vel í hittingi og skemmtunum... og eins og alltaf hefur verið ROSALEGA gaman hjá okkur! Set mynd af stóra dýrinu mínu... engar áhyggjur.. eg kom ekki nálægt þessum bakstri.. as you know, i specialise in sauces !!!! ;) .... þetta er enn versta sósa sem eg hef smakkað!!!! allavega.. sjáumst kannski á jólarölti/hlaupum/snappi... Gamla
mánudagur, desember 12, 2005
Nú líður að jólum og við væntanlega öll að fara hafa það gott.... spurning að við reynum að plana hitting fljótlega á nýju ári, t.d. langar mig að bjóða ykkur heim til mín og Hildar, í mat og drykki eða eitthvað sniðugt - hvernig líst ykkur á ? Svo væri nú ekki vitlaust að fara huga að sumarbústaðaferðinni næsta vor eins og við ræddum um hjá Edda í síðasta hitting. Svo skora ég á alla að láta í sér heyra allavega einu sinni fyrir jól ;) Gleðileg jól ef ég sé eða heyri ekki frá ykkur á síðunni fyrir jól... læt eina góða mynd flakka frá einni af jólagleðinni okkar, fyrir ca. 2 árum síðan, þokkalegur stemmari !!
þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Gaman að sjá einhverja hreyfingu hér. Allt fínt að frétta af okkur, börnin stækka og stækka og það fer eiginlega allur tíminn í að hugsa um þau. Egill Ingi er voða duglegur stóri bróðir og hugsar sko vel um systur sína. :) Og svo er ég bara á fullu í jólaundirbúningi, baka og mála og þrífa, rosastuð.
Hér er mynd af grislingunum.
Sæt mynd af ykkur skötuhjúunum Böddi. Mér heyrist að það hafi verið gaman hjá ykkur í París, ekki lent í sprengjum eða slíku. Ekki laust við að ég öfundi ykkur smá, alltaf gaman að vera í París.
Ég er búin að vera ógurlega busy undanfarið og verð áfram fram til sirka 10.-13. des. Er á fullu í verkefnavinnu, var reyndar bara rétt í þessu, fyrir 10 mínútum síðan, að klára síðasta hlutann af annar-verkefninu plús kynningu á því. Verð mjög fegin þegar kynningin verður búin í kvöld!!! Og þá taka bara prófin við. Sem betur fer bara 2, annað heimapróf og hitt open-book. Guð hvað ég verð fegin svo að komast í jólafrí. Er orðin of gömul fyrir svona nám og vesen. Heilinn er hættur að meðtaka nýjar upplýsingar.
Þegar ég kemst í frí lofa ég brúðkaupsmyndunum, þangað til getið þið bara skoða myndir af litla dýrinu mínu. Mamman er svo stollt af honum. Við vorum í smá fagnaði á crèchinu um helgina, þar sem tekið var á móti St. Nicholas og hann kom og gaf öllum góðu börnunum gjafir. Flest börnin voru þvílíkt hrædd eða smeyk við sveinka, nema Kjartan. Hann var sá eini sem þorði að setjast í fangið á honum. Hins vegar hafði hann engan áhuga að láta taka mynd af sér, var of upptekinn við að skoða nammipokann sem St. Nicholas færði honum.
mánudagur, nóvember 28, 2005
föstudagur, nóvember 11, 2005
Þegar þú minnist á febrúar 2000, fæ ég hroll. Ég var föst þar, kasólétt, í tæpan sólarhring. Þurfti endilega að fara að sjá Heklugosið. Og, eins og allir vita sem hafa verið óléttir, þá getur maður ekki haldið í sér, það var verst.
Svo heyrði pabbi í útvarpsfréttunum um nóttina að verið væri að bjarga ófrískri konu sem væri komin með hríðar úr storminum. Hann var mjög feginn að mamma dottaði yfir fréttunum og sagði henni ekkert þegar hún vaknaði. Þetta var auðvitað ekki ég.
Ég fékk svo að sofa í hjónarúmi hjá góðu fólki á Þorlákshöfn, því að þegar við komum í skólann, þá var hann fullur, og engin dína eftir. Góður björgunarsveitarmaður sendi mig þá heim til sín, vakti konuna sína til að ég gæti fengið að sofa, það var kl 7 um morguninn.
En Lille Bro, ég er að vinna í þessu með myndirnar úr kúbupartýinu. Gott að reka á eftir, þá gleymist þetta ekki!
Hér eru svo fleiri myndir af strákunum mínum: http://www.albumtown.com/showalbum.php?aid=48920&uuid=27650&page=1&pid=758346
Og til hamingju með nýja bílinn, þótt það sé Volvo!!! ;-) Þeir eru svo öruggir að þeim fylgir fallhlíf just in case!!!
Svo vil ég mynd af nýskírða barninu! Og öllum hinum líka!
fimmtudagur, nóvember 10, 2005
How to baptise children
As the good agnostic I am, me and Ásta had our little daughter baptised on the 29th of October. Wanting to play it safe with the deities I suggested the baptism to be held on the land of the man who decided Icelanders should become Christian 1000 years ago. This land is in the north near my hometown. The man, Þorgeir Ljósvetningagoði was the pagan chieftain of the area during the Viking era and had the task of settling the dispute if Icelanders should become Christian or remain pagan, holding on to such characters as Óðinn, Þór, Týr, Loki and such like. He was a diplomat and decided in principal we should become Christian but in fact one could as one pleased. This went well with Icelanders 1000 years ago and on the 29th of October 2005 Karen Ásta was baptised, but with a nod to the Norse gods. The trouble is this plan of mine did not seem to go down to well with the ruler(s) of the universe.
The family set out on the Wednesday prior, i.e. the 26th of October to have a few days of R&R in Akureyri prior to the baptism. We set out in our small Nissan Almera sports car with the aim of beating a tremendous storm that seemed to be brewing somewhere south of
One would think after the ordeal and stress of getting everyone there under very hairy weather conditions we were in the clear, but that was not the case. The next day on Sunday the plan was for everybody to go back home. Some went on the coach at 3pm, but others by plane and the family packed up the small Nissan for another winter drive to Reykjavík. But the low pressure area responsible for the storm on Friday and surely sent by the gods was not about to go anywhere. It had cooled of for some 24 hours from Saturday afternoon till Sunday afternoon and as we hit the road the weather was acting up again. I chequed and double chequed the forecast and the road conditions on the internet and decided it was ok. The planes were flying all that day and the coach company had not postponed or cancelled their trips. We drove.
As we were more or less mid way that lingering low pressure area made its presence felt. As we were about to reach the
Naturally it got worse. The car’s ventilation and heating had been slowly but surely icing up. Shortly after reaching the car in front of me the heating finally broke down and no air was being blown into the car, neither hot or cold, but as the ice storm raged outside the temperature in the car quickly sought equilibrium to the one outside. It was time for action a 13 year old, a 4 month old, me and Ásta in a freezing car and could have to stay there for several hours. I decided to go outside. I put on everything I had, which was ok, but I had no protecting trousers and no hat. I got out of my car and hung on to the bonnet inching my way to the car in front, it was like being hit by a volley of ice needles, my hair and ear immediately froze up and as I could not hold on to the bonnet of my car getting over to the other car I was blown to the side of the road where snow had piled up and had to crawl along that and the snow that had accumulated on the lee side of the car in front in order to get into it. I got there and pulled the door open and guess what therein was a good friend of mine from Akureyri all alone in a car with a functioning ventilation and hot air. I hurried back to my car and made the family ready we had to get over there. First I took Steinarr. I told him he had to simply led go, let the wind blow him on the ice towards the snow on the other side of the road and crawl along there and then up the ridge that had formed on the lee side of the car in front. Naturally I went with him and then back again. Each return to my car meant some 15 minutes of gathering strength as the ice shower literally knocked the wind out of you. Then it was to get Ásta and the baby over. We strapped Karen on the front of Ásta and roped a blanket over her and out we went. We had to go the same way and thankfully it went very well and finally we were all in the car in front. I will freely admit that transferring Ásta and my little girl between the cars in these conditions was the scariest thing I have ever done, me I knew would be ok and Ásta too, but nothing and I truly mean nothing could happen to Karen, I shudder at the mere thought of the infinite potential accidents on this short route.
With the relief of getting all safely into another car, with my good friend I filled two ½ litre plastic bottles with pee and started to try and dry myself as I was by then soaked to the bone. In that car we sat for 5 hours till a snow mobile from the rescue brigades came to pick us up. We were among the last to be rescued and we were transferred to the community centre at the
That day the weather was the same a raging blissard and ice storm and not until evening did conditions improve, at least in the village. I went with the rescue brigades to retrieve the car. We reached the cars and the weather there was still as bad, but this time I had borrowed good gear and was fine. We pulled out several cars and watched a couple literally blown of the road until we finally reached mine. Mine, as everyone elses had its bonnet filled with snow which was like concrete. We had to hack our way to the air intake and fan belt and free those before attempting to start the car. Naturally I needed a jump start but the car did start, much to my surprise and I drove under escort to the village where I tried to mend what I could and unthaw the car. We staid another night in the community home this time with proper mattresses and duvets in a warm room. The relief was immense, I had a few friends amongst those who had got stuck and they were now in the village as the two relief centres had been joined. We managed to get the local publican to open up and sell us a few beers as we were now in the clear.
The day after we drove home to Reykjavík in fair conditions, but as we came into the city I stopped at the Volvo dealership and bought a brand new Volvo station V50. If I was going to be stuck again like that, I want a car that works and we do not run the risk of freezing to death while waiting to be rescued. Next time there might not be an empty car next in front. Why Volvo then, well one of the cars we pulled out was a Volvo and the owner sat in it after we dug it out, started it and drove off. There was nothing wrong with it, nothing. It could take the ice storm, while as almost all other types broke down in some way. I also made another promise to myself. My mountain gear would always be with me in the car from now on!
Baptising children is always an occasion, but if you want to remember it for the rest of your life do them in
þriðjudagur, nóvember 08, 2005
Og ég vil krílamyndir!!! Allir að monta sig af sínu kríli og setja inn nýjustu myndir! Sýna hvað þau eru stór!!!
Ég vil líka kúbukvöldsmyndir.....
Góða skemmtun í París Böddi. Ég myndi nú lítið hafa áhyggjur af þessum látum. Þetta er yfirleitt í úthverfunum sem eru svona sirka jafnlangt í burtu og Keflavík er frá Reykjavík. Njóttu bara Parísar í botn. Ég mæli með góðu rölti um vinstri bakkann, St-Germain-des-Prés og Latínuhverfið, alltaf ljúft, og svo Marolles. Klikkar ekki! Líka ótrúlega gaman að fara upp í turnana á Notre-Dame, eða kannski er það bara ég, er með eitthvað thing fyrir kirkjuturnum! Verð að komast þangað upp!
Og koma svo, MYNDIR! Mínar koma um leið og ég er laus við þetta helv... verkefni!
Af mér er svo sem lítið að frétta, við Hildur erum reyndar að fara til París í helgarferð á föstudaginn eftir viku. Spurning hvort maður þori samt miðað við fréttir síðustu daga, vona að ástandið þarna fari að róast aðeins ?!?!
Áttum við síðan ekki alltaf eftir að gera upp síðasta kúbukvöld... ég var allavega ekki búinn að borga neitt minnir mig.
föstudagur, nóvember 04, 2005
Ekkert merkilegt að frétta. Ég er að reyna að berja hausnum við stein og vera í námi. Búin að komast að því að ég er ekkert geim í meira nám. Eflaust ástæðan fyrir því að ég nenni aldrei að vinna verkefnin mín (en snautast samt til að klára þau rétt fyrir skil). En ég ætla að klára þetta (fyrst maður er búinn að borga) og hætta svo. Taka mér gott sumarfrí og fara svo í atvinnuleit!
Líklega verðum við svo eitthvað áfram hérna úti og erum að spá í að flytja. Komin með hundleið á húsinu sem við erum í, plús við búum lengst út í rassi. Skil ekki að ég miðbæjarrottan hafi samþykkt suburbiu dauðans þegar við fluttum hingað! Svo það á að finna hús sem er nær miðbænum, með pínulítinn garð, helst malbikaðann, og risa-eldhús!
Og svo vil ég fá myndir!!!! Það er komið fullt af nýjum krílum og maður fær ekkert að sjá! Meiri myndir!
miðvikudagur, október 12, 2005
Spurning hvort hann eigi nokkuð eftir að líkjast félaga okkar og kórsöngvara Árna S.(igurði) Björnssyni !!! - veit einhver um þann pjakk núna, hvað hann er að fást við, hef ekki heyrt né séð í nokkur ár.........
Ella, voru engar myndir teknar í brúðkaupi ykkar hjóna um daginn ? Væri gaman að sjá eitthvað, fyrst við vorum ekki á svæðinu (allavega ekki ég).
Marta, þú varst að smella af í gríð og erg um daginn, ertu búin að henda þessu inn á netið e-h staðar ?
þriðjudagur, október 11, 2005
mánudagur, október 10, 2005
Hann fæddist kl 00:11 í gær þanni 9.okt, 14 merkur og 51cm.
föstudagur, október 07, 2005
miðvikudagur, október 05, 2005
Ég vil gjarnan heyra meiri sögur frá laugardagskvöldinu, sjá uppskriftir og myndir!!!! Ég hugsaði stíft til ykkar á laugardagskvöldið, meira að segja skellti í mojito!!!!
Annars þykist ég vera að læra, nóg að gera og það bara bætast við verkefni.... styttist líka í miðannarpróf. Gúlp!
Svo það er eins gott að snúa sér aftur að bókunum...
þriðjudagur, október 04, 2005
Það er alltaf gaman að borða svona öðruvísi mat, kúbu matreiðslubókin lofar góðu.
Ég er til í stóra sumarbústaðaferð í vor, hlakka strax til.
Smá fréttir hér af kerlu... Orkumálastjóri var að að ráða mig sem yfirverkefnisstjóra í upplýsingatækni á Vatnamælingum. Sko.. allt geta og mega ófrískar konur gera í dag :) Ég byrja með glans, er komin í veikindafrí fram að fæðingu, og svo fæðingarorlof fram í apríl. En hlakka rosalega til að mæta aftur og taka á þessu.
Annars er allt tilbúið fyrir nýja barnið, er bara að vona að þetta dragist ekki fram yfir 17.okt.
mánudagur, október 03, 2005
tókst aldeilis ljómandi vel - góður og "öðruvísi" matur að kúbönskum stíl ! Eftirrétturinn hefðbundnari, geðveikt góð SYKUR bomba með ávöxtum, eins og eddi sagði held ég: FRúTTA BOMBA !!
takk fyrir mig - hvað skulda ég, check plís ?
líst svo vel á kannski næsta vor að leigja Skógarkotið og allir að mæta með alla sína og fylla bústaðinn, tekur 12 manns hið minnsta þessi bústaður, svo er hægt að bæta við dýnum og svefnloft örugglega stórt !
laugardagur, október 01, 2005
Líst rosalega vel á matseðilinn og kokkana. Er farin að hlakka til að borða :) Við gömlurnar komum svo með eitthvað gúmmulaði í eftirrétt.
Vá hvað ég væri til í að fara á Orichas í Brussel! Væri að skoða miða á netinu ef ég væri ekki ólétt, en við förum bara seinna ;)













