miðvikudagur, mars 19, 2008

Hæ.
Þetta gengur illa. Þið bara látið mig vita þegar þið ætlið að hittast og ég sé þá til hvort ég verð í bænum eða ekki.
Gleðilega páska.

fimmtudagur, mars 13, 2008

Sælir vinir, gætum allt eins tekid "lunch" eda einn espresso um kaffileytid mín vegna... væri gaman ad sjá fésin á ykkur aftur, spjalla og diskútera, long-time no-see. Eru ekki Sólon eda Vegamót alltaf fínir stadir .

Kem á sunnudaginn nk. og býst vid ad fara vestur á Ísafjord 19. eda 20.mars. Verd med símann á mér og gamla góda íslenska númerid. Ef ekki er stemmning eda fólk almennt bissí, thá bara frestum vid og gerum eitthvad gott úr thessu seinna meir.

kv, BIE.

þriðjudagur, mars 11, 2008

Uhh, sýnist sem þetta verði hugsanlega erfitt.

Var að skoða dagatalið og þetta eru allt virkir dagar sem Böddi er í bænum, nema kvöldið 19. mars... og það kvöld eru bæði ég og Hildur uppteknar.

Plan B gæti verið að hittast og fara út að borða saman eitthvað af hinum kvöldunum. Gæti það hugnast fólki?

Svo veit ég að Stebba er á einhverju heljarinnar flakki um veröldina? Hvernig er það Stebba, verðurðu staðsett á Klakanum á þessum dögum?

Og hvað með ykkur landsbyggðartútturnar, hvar í veröldinni verðið þið?
Hvað segið þið kæra Kúbufjölskylda, eru allir geim í hitting í næstu viku????

Getum haldið Kúbupartý heima hjá mér, ég á nóg af kúbutónlist og er með sérstaka mojito-stillingu á ísskápnum mínum!

Hvað segið þið? Eru allir geim eða eru allir "annars staðar"????

miðvikudagur, mars 05, 2008

Hæ, verd á landinu fra 16. - 27. mars, allavega i bænum frá 16. - 19.mars, verdum um páskana á Ísafirdi.

Ef thid viljid skipuleggja hitting a thessum tima, væri ég til í eitthvad geim.... it´s up to you !

kv, Bjorn Ingi.

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Hæ hæ, 
gaman að heyra frá ykkur, velkomin "heim" Ella, þ.e. til Íslands :)
Býst við fleiri partýum, kúbu-kokkteilakvöldum, sumarbústaðaferðum og skemmtilegum uppákomum, 10 ára partýið verður fljótt 15 ára.... landsbyggðar"pakkið" verður aðeins að fara taka sig á, eða höfuðborgarsvæðisliðið að skreppa út í sveit !
Skemmtilega vetrarveðrið á klakanum búið að vera hefur maður lesið um á netinu, ekkert nema lægðir, ófærð og snjór... hér i Köben er bara nokkuð rólegt og þægilegt, 7-9 gráður og voða einhæft veður eftir frekar kalda desember og janúar. 
Búinn í prófum, sem gengu nokkuð vel og allt á áætlun enn... kominn í "dönskukúrs" í skólanum þannig að núna verður maður að fara taka dönskuna vel í gegn ef maður ætlar að komast í gegnum hann. Fjallar um kenningar og aðferðarfræði í landslagsarkitektúr, virkar nokkuð nettur við fyrstu sýn, verkefnavinna komin á fullt, 10 íslendingar í sama kúrs og próf í byrjun apríl.
Til hamingju með kennarann Hildur, örugglega gaman að kenna skemmtilegu fólki, unglingum og krökkum.... sömuleiðis Stebba gaman að flytja, maður á örugglega eftir að kíkja i eitthvað partýið, kúbukvöldið á næstu árum í Árbænum ;)
Med venlig hilsen, BIE.

mánudagur, febrúar 04, 2008

Hæ.
Til hamingju Hildur :-)
Ég er alltaf á vonlausum tímum í RVK, yfirleitt í miðri viku í 2-3 daga. Þannig að bústaðadjamm eða partý verða án mín. Annars er lítið planað hjá mér. Lífið er svo afslappað þessa dagana að ég nenni ekki plönum. Ætla í fyrsta skipti á ævinni að njóta rólegheitanna í stað þess að fylla skedjúalið þannig að það rjúki út um eyrun. Svona er gott að búa á Egilsstöðum...
En ef þið eruð einhverntíman til í kaffihús eða út að borða í miðri viku ( eða jafnvel á föstudegi) þá er ég til.
Kveðja, Inga

miðvikudagur, janúar 30, 2008

Hæhæ
Velkomin heim Ella :) Já ég er sko líka til í hitting, vil samt ekki lofa neinu á meðan færðin er svona. Lenti í svo hrikalegu veðri um daginn að ég keyri sko ekki í hverju sem er eftir það. Alger skræfa, ég veit! En mig langar orðið alveg hrikalega til að hitta ykkur, alltof alltof langt síðan. Er líka með bullandi samviskubit yfir að hafa klikkað svona svakalega þegar Inga var að reyna að smala okkur saman svo að nú verð ég að standa mig!

Ég er búin með Kennó og get því bæði titlað mig sem grunnskólakennara og framhaldsskólakennara, ekkert smá ánægð með það. Ég er líka alveg að fíla mig í kennarahlutverkinu, dauðlangar reyndar til að prófa að kenna í Fjölbraut en finnst bekkurinn sem ég er með núna svo æðislegur að ég veit ekki hvort ég tími að sleppa honum strax. Ég er s.s. að kenna 8.bekk í Barnaskólanum á Eyrarb. og Stokks., sama bekk og ég var með í fyrra. Svo að fyrst að lærdómurinn er búin þá sit ég bara og föndra á kvöldin (dettur stundum í hug hryllingssögurnar hennar Mörtu frá Ólafsvík). Mér finnst reyndar hrikalega gaman að föndra svo ég er mjög sátt með þetta :)

Allavega, hlakka til að hitta ykkur aftur, og hvernig var það, var ekki pæling um að hittast öll sem vorum í landafræðinni, svona af því að það eru 10 ár síðan við kynntumst?
Gaman að frétta af ykkur. Velkomin heim Ella!
Ársfundur félags landfræðinga verður haldinn þann 28.feb, þið mætið öll.. ekkert múður.
Þeir sem eru ekki í félaginu komast í félagið með hraði í gegnum klíku (sendið mér, BT eða Eddie póst með kt ofl).
Stjórn FL er að skipuð óvenjulega skemmtilegu fólki, þessvegna verður þetta óvenjulega skemmtilegt kvöld og þið fáið að borða og drekka.
Svo var kerlingargreyið líka að heimta kúbuparty... verð að segja að við erum orðnar DESPERATE.
Dagsetningu frá ykkur landsbyggðafólki sem fyrst. Hvenær komist þið í bæinn í partý eða í sumarbústað með okkur?

Svo eru fréttir af mér, ég var að flytja í Reykás 33 um helgina, er á fullu að mála og græja allt mögulegt og er að tapa mér yfir því öllu. Halldór skipti um skóla með viðeigandi veseni og svo er klikkað að gera í vinnunni. Ég ætla þessvegna að stinga af til útlanda í frí um leið og ég sé nokkurn sjens á því. En fyrst vil ég kúbuparty og þamba mojiot með ykkur.

fimmtudagur, janúar 24, 2008

Gleðilegt árið elskurnar mínar!!!!
(Samkvæmt belgískum "reglum" má maður senda áramótakveðjurnar alveg til loka janúar)

Þá er maður kominn aftur á Klakann, í orðsins fyllstu! Snjór snjór snjór og aftur snjór!

Ég er svona rétt að lenda og ná áttum. Við tókum fyrstu dagana í afslöppun og n.k. frí því foreldrar mínir hafa bæði verið heima og getað hjálpað með strákana. En nú eru allir komnir í vinnu aftur og Kjartan byrjaður í leikskólanum, svo það er víst ekki seinna vænna að komast í gír, finna dagmömmu og vinnu!!!!!
Ég held samt að ég lendi ekki alveg fyrr en búslóðin okkar er komin og við flutt inn í "okkar" íbúð! Þá fyrst byrjar alvaran aftur...

En vonandi sé ég ykkur nú flest sem fyrst. Hvenær eigum við að hafa næsta Kúbukvöld????
Velkomin heim Ella!

laugardagur, desember 29, 2007

Gleðilega hátíð kæru vinir !

Við fjölskyldan hér í Köben óskum ykkar farsældar á komandi ári, með þökk fyrir liðin ár - hafið það gott í Brussell, Egilsstöðum, Akureyri, Selfossi, Mosó og Reykjavík !

Björn Ingi, Hildur og Ísak Helgi.

fimmtudagur, desember 27, 2007


Gleðileg jól elskurnar
Kveðja, Inga

mánudagur, desember 10, 2007

Sæl öll sömul!

Gaman að heyra fréttir frá Köben og Egilsstöðum.

Frá Brussel eru bæði skemmtilegar og leiðinlegar fréttir. Við erum núna á fullu að undirbúa flutninga aftur heim á Klakann. Munum pakka niður og flytja heim í lok janúar. Enn eru milljón ófrágengir endar eins og íbúð, pössun fyrir Tobba, hvað þá vinna fyrir mig og fleira, það er ekki einu sinni búið að fastsetja flutningadaga eða kaupa flugmiða... en við verðum amk komin áður en Hrafnkell byrjar að vinna 1. feb. Svo mun ég bara fara í það að leita að dagmömmu fyrir Tobba og vinnu handa mér. Ef þið vitið um eitthvað skemmtilegt endilega látið mig vita.

Í miðju flutningaskipulagsstressinu erum við svo að reyna að undirbúa jólin, nema það gengur hálf brösulega. Strákarnir eru búnir að vera meira og minna veikir í nóv og des og ég lítið komist út úr húsi. Fyrst fengum við hlaupabóluna í heimsókn og sú törn tók 3 vikur... svo var ég sloppin út í nokkra daga en þá kom kvef og hálsbólga og annað slíkt. Frá 1. des hef ég varla farið út!!!! Ég er einmitt algjört jólabarn, elska að skipuleggja gjafirnar, fara í leiðangra og kaupa í pakkana, föndra og baka, pakka gjöfunum inn fínt og allskyns dúllerí, að sjálfsögðu með jólatónlistina í botni. En það hefur farið lítið fyrir slíku fyrir þessi jól enda er ég busy að leika hjúkrunarkonu! Og gjöfunum hefur að mestu verið reddað með aðstoð internetsins og amazon!!!

Jamms.... En febrúar verður partý-mánuður!!!!

P.s. Inga, ég skal hjálpa þér að ná þessum skvísum út að borða... okkur tekst það á endanum!!!!
Hæ. Allt hið besta frá Egilsstöðum. Ég hef reyndar 2x reynt að smala stúlkum Kúbufjölskyldunnar + Ágústu, saman þegar ég hef verið að koma í bæjarferð en það hefur ekki tekist. Best að leyfa einhverjum öðrum að taka það að sér næst ;-)

Annars er ég að fara yfirum í jólaskapi. Held það finnist varla jafnmikil þrítug jólastelpa og ég á Íslandi. Þá er ég ekki að meina bakstur og föndur skreytinga og gjafa ( það kann ég ekki). Heldur meira að sitja og lesa með seríur allt í kringum mig, jólate og piparkökur. Skoða uppskriftarbækur og reyna að ákveða hvað ég á að hafa í matinn á aðfangadag því í ár eru fyrstu jólin sem við verðum heima. Bara við. Og ég get ekki beðið.

Svo verður flogið til Reykjavíkur þann 3. í jólum og viku eytt hjá tengdó.

Þá er kominn janúar 2008 og ekki hægt að segja að það sé minn mánuður. Uppáhaldsmánuðurinn búinn og ekkert nema snjóbylur, kuldi og rútína tekur við. Mér fannst svo leiðinlegt á Egilsstöðum í Janúar og febrúar í fyrra að það munaði engu að ég pakkaði niður og flytti út í heim. Núna verða gerðar ráðstafanir svo það gerist ekki aftur.

Gaman að heyra fréttir frá Köben. Til hamingju með prófin og gangi þér vel með rest.

föstudagur, desember 07, 2007

Hæ Hæ kæru vinir, ekkert að gerast á blogginu okkar :( Skrýtið, en svona er þetta stundum, lítið að frétta og ekkert að segja frá.

Langaði aðeins að láta heyra frá mér í Köben, styttist í jólin og veðrið svona la-la, þó örugglega skömminni skárri en á Íslandinu, þar sem hefur verið kalt, snjór og bylur skv. netinu ;)

Við fjölskyldan erum búin að færa okkur um setur og vorum að flytja síðustu helgi á mun betri stað hér í Köben. Nær skólanum mínum, matvöruverslun hér við hornið, strætó og lestarstöð nánast beint fyrir utan, þannig að við erum á frábærum stað hér í Köbenn, í Fredriksberg fyrir þá sem eru kunnugir borginni, Borups Allé heitir gatan og er íbúðin bara ansi flott og kósý !

Ég er búinn í tveimur kúrsum og prófin gengu bara vel, annað mjög vel og hitt ansi vel - mjög sáttur miðað við fyrstu prófin, og þau munnleg í þokkabót, fyrstu prófin í um 6-7 ár, danirnir ekkert hrifnir af skriflegum prófum, vilja bara drífa þetta af og spjalla í 15-20 mín og málið er dautt !! Er byrjaður í tveimur nýjum kúrsum sem standa yfir fram í lok janúar og þá aftur munnleg próf í þeim, ansi skemmtilegir áfangar reyndar og lýst vel á framhaldið.

Hvað er annars að frétta af ykkur kæru vinir, endilega látið heyra í ykkur, einhverjar fréttir eru góðar fréttir :) Væri gaman ef maður frétti af hitting, partý eða matarboði hjá þó hluta hópsins þannig að "fjölskyldan" væri ekki dauð úr öllum æðum ! Eða sumarbústaðaferð, þær voru nú alltaf frekar skemmtilegar, vel veitt af mat, drykk og öðrum veigum... gaman saman.

Kveðja frá CPH, Björn Ingi.

laugardagur, október 27, 2007

Okkar maður loksins heiðraður, eins og hann á svo sannarlega skilið !

http://www.happynews.com/news/10172007/ricky-martin-gets-walk-fame-star.htm Livin'la vida loca: http://www.youtube.com/watch?v=HlKocJWE5S4

Kveðja fra Köben.... BIE.

þriðjudagur, október 09, 2007

Sælir kæru vinir, langt síðan maður hefur látið vita af sér. Köben er það núna, netið orðið virkt og skólinn byrjaði í lok ágúst. Við fjölskyldan svona rétt að verða búin að koma okkur fyrir. Ísak Helgi litla ljósið okkur stækkar, farinn að skríða á fullu, allir á iði, stekur strákur - eitthvað að flýta sér við allt :) Gaman að því, yndislegur. Tíminn líður hratt og námið á fullu, verkefnin hlaðast upp og styttist í fyrstu prófin. Hérna er árinu skipt upp í fjórar annir þannig að fyrstu lokapróf eru í lok okt. Svo taka við nýir kúrsar. Var í Malmö í dag, við fjögur í einum hópnum, hópaverkefni, skutumst yfir til Svíþjóðar að skoða nokkra staði þar í tengslum við eitt verkefnið. Ekkert mál, lestirnar ganga á 20 mín fresti ! Áhugavert nám og rétt að byrja, líst vel á og hlakka til með framhaldið. Þroskandi að fara aftur í nám, læra upp á nýtt, læra að læra, spennandi - útlönd heilla, en Ísland samt líka, öðruvísi að fylgjast með svona í gegnum netið, að ofan, úr fjarlægð, ekkert að gerast en samt alltaf eitthvað, Yoko ono, Ringo star að kveikja á friðarsúlu, í beinni í Danmörku á tv-2, gaman að því, Villi Vill að halda ræðu í rokinu, allir að frjósa, Ringo gat ekki beðið eftir að komast inn og á barinn !

Erfitt en samt spennandi að verá í landi og borg sem maður kann ekki utan af, mental-mappið samt orðið nokkuð klárt og leiðin í skólann alltaf sú sama. Öðru hvoru breytir maður til og fer nýja leið. Ekkert mál, borgin ekki eins stór og virðist í fyrstu, kortið blekkir - maður hjólar og eftir stutta stund er maður kominn á leiðarenda. Hér fer maður allt á hjóli, labbandi eða í lest. Bíllinn er bull. Bíllinn er vesen. Vorum á bíl hér fyrstu 10 dagana og satt best að segja var maður feginn að skila Hertz bílaleigubílnum inn. Umferðin er ekki skemmtileg, hún er leiðinleg, hún er vesen, maður fer hægt yfir og hjólin taka fram úr. Þau eiga réttinn, alltaf að líta til hægri, ef ekki keyrir maður á hjól, það væri ekki spenanndi, bara vesen, vesen eru slæm og ekki til framdráttar ;)

Inga mín, innilega til hamingju með brúðkaupið, hrikalega hefði verið gaman að slást í för með kúbuliðinu og djamma, samfagna og skála ! Ég trúi varla að 10 ár séu liðin, tíminn líður, við eldumst (samt ekki) - allir hafa það gott, við búum á mismuandi stöðum, Kaupmannahöfn, Brussell, Egilsstaðir, Akureyri, Selfoss, Mosó og Reykjavík - svo lík öll en samt svo fjarlæg :) Svona er lífið, gaman að þessu.... við höfum hitting e-h tímann þar sem við öll getum hist, það væri frábært og tímabært, kemur að því - ekkert liggur á, við erum ung (þó þrítug og rúmlega séum), ung í anda og líkama... komin með börn og burur, erfingja, stelpur, strákar, sum gift önnur ógift, allt í gangi. Öll við góða heilsu, skemmtileg og sæt... hvað er mikilvægara, ég bara spyr ?

Eins og Inga nefndi man ég eins og það hefði gerst í gær þegar við sátum í aðalbyggingu HÍ hjá Önnu Dóru Sæþórs, og vorum að kynnast, fyrstu tímarnir, stressandi, hvað á maður að gera, hvað á maður að segja, hvað er maður að gera í landafræði... hvað er landafræði annars? Á maður eitthvað sameiginlegt með þessu fólki, hvað er ég að gera hér ????? hehe, skrýtið, svo er þetta bara gaman, skemmtilegt fólk, áhugavert nám, skemmtilegur félagsskapur, frábærar námsferðir, fólk kynnist, fer að þekkjast, kúbufjölskyldan verður til... gæti það verið betra síðan, dinnerar, djamm, pottapartý, bústaðarferðir, ekki slæmt eftir 10 ár. Eins og Inga nefndi þá á örugglega ekki eins mikið eftir að gerast á næstu 1o árum og þeim 10 síðustu. Hver veit samt.

Kæru vinir, langaði að bara aðeins að láta frétta af mér og mínum, bið að heilsa ykkur öllum, verið dugleg að skrifa, hittast, spjalla, láta vita af ykkur og ykkar högum, alltaf gaman að fylgjast með að utan, heiman hvaðan sem er. MSN er sniðugt, bið að heilsa, gangi ykkur öllum sem best, kv. BIE :)

föstudagur, október 05, 2007

Gaman að heyra frá ykkur :)
Það eru semsagt 10 ár ..hmm.... mér finnst líka langt síðan. Er búin að eiga 2 krakka, búa í Danmörku, taka masterspróf, gifta mig, flytja átta sinnum, heimsækja ca 75 vatnshæðarmæla, borða krókódíl, kaupa mér hús og jeppa, tala næstum því kínversku og fara í meira en 50 parý með ykkur.
Við ættum að halda uppá að við hittumst fyrir 10 árum, borða mat og dansa :) Eruð þið með hugmyndir um hvar og hvenær er best að hittast? Reyna að ná sem flestum. Það er svo gaman.

þriðjudagur, september 18, 2007

ég er greinilega alltof löt við að skrifa hérna inn því að ég gleymi alltaf passwordinu mínu. Þetta er náttúrulega ekki hægt.

Allt fínt að frétta af mér, náði öllum prófum í sumarkúrsunum og er bara á fullu að vinna, læra og hugsa um heimilið. Engar stórfréttir á ferðinni á þessum bæ.

Inga, til hamingju með afmælið á morgun (er það ekki rétt hjá mér). Mér líst rosalega vel á að hittast öll sem fyrst.