þriðjudagur, maí 30, 2006
mánudagur, maí 29, 2006
þriðjudagur, maí 23, 2006
mánudagur, maí 22, 2006
Inga og Eddie.. til hamingju með þessar ákvarðanir. Við erum þá bara 3 eftir í borg óttans (snökt snökt).
Við verðum að hafa fjölskyldumót sem fyrst, ég er farin að sakna ykkar.
Ég bíð ykkur í grill heim til mín, var að fá mér gasgrill eins og úthverfahúsmóður sæmir.
Hvernig líst ykkur á það?
Ég sé um grillið og þið sjáið um vínið.
Það eru ekki margar helgar sem koma til greina hjá mér. Er að fara til usa 13.júní til 7.júlí. Þannig að það er 27.maí, 3.jún og 10.jún. Mín vegna getum við alveg haft þetta á föstudegi.
OG MÚTTER.. segðu hvað ertu að fara að gera á Akureyri... og ertu búin að kaupa þetta hús. Þá getum við aldeilis öll mætt og gist hjá ykkur MÚHAHAHAHA!

Jæja, þá verður ennþá erfiðara að plana hittinga nú þegar rúmlega hálfur mannskapur er fluttur út á land, Reykjavík 3 - Landsbyggðin-mosó-útlönd 6, ;) til lukku með það samt edward formaður, alltaf gaman að flytja, en mér er spurn, af hverju? ...en þangað til, þyrftum við allavega að fara ákveða eitthvað með í júní, það styttist, mér finnst að allir ættu að leggja sig fram um að mæta, ég gæti ímyndað mér að yrði síðasti hittingur okkar allra saman í langan tíma :( grillum í góða veðrinu í Reykjavík heima hjá einhverjum.....
mánudagur, maí 15, 2006
fimmtudagur, maí 11, 2006
miðvikudagur, maí 10, 2006
Hr. formaður, Edward Huijbens ætti að vita myndi maður halda, alltaf á flakki um landið með stóra sem smáa hópa hér áður fyrr.... spurning með bílaleigurnar hvort þær leigi stóra bíla, þið þyrftuð þá að hafa bílstjóra, t.d. hertz, avis, budget.... Teitur leigir litlar sem stórar rútur, örugglega dýrt með bílstjóra, www.teitur.is, svo kannski Guðmundur Jónasson, það er rútufyrirtæki að ég held ! Kannski Ágústa geti hjálpað þér, hún er nú að vinna í þessum bransa - að mig minnir !
laugardagur, maí 06, 2006
föstudagur, maí 05, 2006
Landsbyggðarpakk ;)
djók Inga mín... flott hjá ykkur og gangi ykkur allt í haginn, stórt stökk en þú ert nú á leið á heimaslóðir þínar, þannig að þetta verður örugglega gaman !
Ella, þú veist að það er skyldumæting hjá þér ef við plönum hitting meðan þú ert á landinu... við erum nú líka vinir og fjölskylda, kúbufjölskyldan :)

Til hamingju með þetta Inga, frábært hjá ykkur!!!! Mér finnst þið ekkert skrýtin. Ef þið fáið betur borgaða vinnu fyrir austan og komist í stærðar einbýlishús í staðin fyrir litlu kjallaraíbúðina, þá eru þetta alls ekki slæm skipti!! Plús að fjölskyldan þín er fyrir austan. Ef ég má spyrja, hvar farið þið að vinna??
En kæra fjölskylda, endilega planið hitting. Það væri gaman ef það yrði þegar við erum á svæðinu (og ég mundi líklega taka kallinn með, einhver verður að drekka mojito!!!!). Ég veit hins vegar ekki hvort við kæmumst á Selfoss, erum bíllaus! Þetta er stutt stopp og mikið að gera við að hitta alla vini og ættingja. Vil endilega hitta ykkur en það yrði aldrei meira en ein kvöldstund! En endilega planið og við myndum gera okkar besta til að mæta!
ciao úr sólinni og 30 stigunum
Ella

fimmtudagur, maí 04, 2006
Hæ öllsömul.
Nýjustu fréttir á þessum bæ eru þær að ég, minn maður og börn höfum ákveðið að taka saman allt okkar hafurtask og flytja til Egilsstaða. Erum að leita okkur að helst einbýlishúsi, bæði komin með vinnur og betri laun. Ég reyni að komast með ykkur hvert sem þið farið til að kveðja. Halli fer mánaðamótin maí/júní og ég fer júní/júlí. En meira um það seinna...........
Vitið þið um einhvern sem á rútu og vill eyða deginum með 1 gæs og 20 biluðum vinkonum hennar, þ.m.t. mér og taka sanngjarnan pening fyrir?
Kv, Skringibjörg ( eins og samstarfsfélagar mínir kalla mig þessa dagana).

miðvikudagur, maí 03, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)